Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Side 17
Það var á hernámstímunum. Ein,
sem var í „ástandinu" í Bergen, átti
von á barni á fæðingarstofnuninni.
Stúlkan bar sig illa við fæðinguna
svo ljósmóðurinni þótti nóg um: Hættu
þessu væli stúlka mín. Þú máttir vita
það fyrirfram, að það væri verra að
fá Þjóðverja út enn inn.
*
Þegar Samúel Gokhvyn kvikmynd-
aði hið fræga leikrit Shaw, Pygmalion,
fyrir allmörgum árum fullvissaði hann
skáldið um, að hann kærði sig koll-
óttan þótt hann tapaði á myndinni.
Aðalatriðið væri hitt, að hún yrði sem
fullkomnast listaverk.
Shaw svaraði:
„Þarna kemur glöggt í ljós munur
okkar tveggja; ég hugsa um pening-
ana, þér einungis um listina“.“
*
„Látum okkur vera þakkláta fyrir ,
heimskingjana. Án þeirra kæmumst
við ekkert áfram í lífinu".
„Ég er frá nýju Fiskverkunarstöðinni h.f. á Selfossi. Má ég ekki borga með
saltfiski?"
*VAKTIN
Trúgirni er lykillinn að öllum ævin-
týrum. f þeim er sá einfaldi hinn raun-
verulegi sigurvegari.
*
Tvær eldri konur rökræddu hina síð-
ustu og verstu tíma, ásamt öllu því
mótlæti og erfiðleikum, sem þær höfðu
orðið fyrir á lífsleiðinni.
„Bezt hefði nú verið, að við hefðum
aldrei fæðst", sagði önnur þeirra.
„Ójá, en það eru nú svo fáir, sem
eru svo heppnir, andvarpaði hin“.
*
Frúin: „Ég vona að þú hafir ekki
mætt mörgum, sem þú þekktir".
Maðurinn (drukkinn): „Nei, góða
mín, alls engum, — en ég mætti mörg-
um, sem virtust þekkja mig“.
Ameríkani skýrir svo frá, að þegar
hann var á skemmtistað í Kaupmanna-
höfn, hitti hann unga og glæsilega
stúlku. Hann spurði hana, livort hún
talaði ensku.
„Not much“, svaraði stúlkan.
„How much?“
„Ten dollars".
*
„Hvað sagði læknirinn við þig?“
„Hann sagði, að ég þyrfti að fá
frískt og saltmengað loft í lungun.“
„Ætlarðu þá ekki í sjóferð?"
Ónei, konan mín sá ráð við þessu.
Hún setti mig út á svalir öðrumegin
við stórt fat með saltsíld. Síðan stillti
hún ryksuguna öfugt hinumegin frá,
svo að hún blés á fatið.
Per Augdahl, þekktur norskur pró-
fessor, starfaði áður fyrr, sem lög-
fræðingur. Einu sinni í réttarhöldum
skilgreindi hann „hugtakið þjófnaður"
þannig:
„Þjófnaður — heiðraði réttur — það
er þegar einhver persóna ágirnist eig-
ur náungans svo ákaft að ekki vinnst
tími til að stofna hlutafélag áður.“
*
Nr. 46: Hvernig er liðþjálfinn eig-
inlega sem maður?
Nr. 73: Það hef ég ekki hugmynd
um, ég hef aldrei séð hann sem mann.
*
Tveir Skotar fóru í göngutúr í Aber-
deen. Það hringlaði grunsamlega í vasa
annars þeirra.
„Ertu með peninga í vasanum,
Sandy?“
„Hvernig getur þér dottið slíkt í
hug?“ sagði Sandy hneikslaður. „Það
eru tanngarðar konunnar; ég vil ekki
hafa, að hún sé að borða á milli mál-
tíða“.
VlKINGUR
69