Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Síða 19
í 8500 tonna úthafsskip
i
240 m. löng tilraunaþró í Lyngby í Danmörku.
Skipslíkaninu komið fyrir undir mælivagninum.
Algengustu rannsóknimar beinast að því að
finna hve mikið vélaafl ákveðin skipagerð þarf að
hafa til að skipið nái æslálegum hraða.
Þá rannsaka menn stöðugleikann, veltiáhrifin,
mismunandi straumlínugerðir, stýrisbúnað o. m. fl.
Við nokkrar rannsóknir eru líkönin dregin um
þróna af mælivagni, sem ekur á teinum, er liggja
sitt hvorum megin við þróna.
Teinarnir eru lagðir svo nákvæmlega, að þeir
fylgja eftir boga jarðarinnar — og þar með vatns-
yfirborðinu í þrónni — munar aðeins örfáum
hundi'uðustu hlutum úr millimefra.
Með elektroniskum mælitækjum eru gerðar ýms-
ar mælingar.
Tölugildin eru síðan sett í tölvur. En útreikning-
ingur þeirra gefur síðan til kynna, hvort þörf er
á að breyta einhverju í fyrirhugaðri smíði.
Á liðnum árum hafa þessar líkanarannsóknir
leitt til ýmissa þýðingarmikilla endurbóta á línum
skipanna og skrúfugerðum — endurbætur, sem
gert hafa kleift að ná meiri hrafða með sömu hest-
aflatölu.
Þegar nýja skipið er fullsmíðað og leggur upp
í reynsluför sína frá skipasmíðastöðinni og stuttu
síðar fer í jómfrúferð sína, hefur litla parafín-
skipið lokið hlutverki sínu.
Líkanið er þá brætt upp og síðar mótað i önnur
skip — kannski fiskibát, hraðskreitt kæliskip eða
risastórt tankskip. — Ö. S.
VÍKINGUR
71