Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Side 36
SAMGÖNGUMÁL
í öllu því flóSi lesmáls og mynda,
sem daglega fyllir blöðin, bæði dag-
blöð og vikublöð, um poppmúsik,
íþróttir (íþróttakeppnir), atómljóð
(ef hægt er að kalla þá listgrein(?)
ljóð), óléttar prinsessur, flugvéla-
rán, stríð í ísrael, stríð í Viet Nam
o. fl., o. fl., má kalla það mikinn við-
burð að finna í Lesbók Morgun-
blaðsins hinn 2. ágúst 1970 grein og
myndir um samgöngur næstu fram-
tíðar eftir Arngrím Sigurðsson.
Þar eru skemmtilegar myndir af
hugsuðum samgöngutækjum fram-
tíðarinnar í lofti, á landi og sjó,
sem hugsuð eru og hönnuð með til-
liti til vaxandi fólksfjölda, vaxandi
mengunar á andrúmslofti, síaukinni
þörf fyrir að koma sem mestum
fjölda fólks og sem mestu magni af
hvers konar varningi milli borga,
landa og heimsálfa á sem skemmst-
um tíma og án þess að eitra um of
okkar dýrmæta andrúmsloft og út-
höfin fyrir lífvænlegum skilyrðum
til lífsframfærslu nytjafiska og ann-
arra fæðutegunda. Einna mesta at-
hygli mína vakti vagninn, sem
hugsaður er sem riffilkúla, gengur
í röri með ca 800 km hraða á
klukkustund. Ef hægt er að leysa
loftræstingu í þvílíkum vagni, virð-
ist hann ákaflega forvitnilegur og
hagkvæmur sem farþega „skutla“,
og sem vöruflutningatæki virðist
ekkert mæla gegn honum í fljótu
bragði.
Sennilega yrði kostnaður við
lagningu hinnar risavöxnu rör-
leiðslu mikill, en þó miklum mun
minni en vel undirbyggðra hrað-
brauta. Þessar leiðslur mætti leggja
beint milli áfangastaða án mikillar
undirbyggingar, jarðvegsskipta eða
vali vegarstærða eftir nútímalög-
máli.
Maður skyldi aldrei segja aldrei
og hugsanlegt væri að ungir íslend-
ingar ættu eftir að lifa þá tíma, að
nokkrum hundruðum manna og/eða
hundruðum tonna af vamingi yrði
skotið til Akureyrar á 15—20 mín-
mínútum eða til Seyðisfjarðar á 20
—30 mínútum án þess að ryðja
þyrfti fjallvegi eða takmarka öxul-
þunga. Ég hef hér aðeins minnzt á
eina af sex hugmyndum um fram-
tíðarfarartæki, enda þótt hinar
fimm séu allar forvitnilegar og
sennilega allar framkvæmanlegar
og verði kannski hversdagslegar að
nokkrum áratugum liðnum.
„Mættum við fá meira að
heyra?“
Guðfinnur Þorbjömsson.
Ekkja nokkur stefndi ritstjóra blaðs
eins, sem getið hafði um lát manns
hennar. Hafði blaðið komizt svo að
orði, að maðurinn hefði farið til betri
heimkynna.
*
Skrif stof ust j órinn:
Þessum skjölum eigið þér að raða í
stafrófsröð og fleygja þeim síðan í
bréfakörfuna.
*
Læknirinn: Sofið þér vel á nóttinni?
Sjúklingurinn: Já, ágætlega.
Læknirinn: Hvað starfið þér?
Sjúklingurinn: Ég er næturvörður.
*
Gesturinn á uppboðinu:
Það kemur ekki til nokkurra mála,
að ég hafi keypt allt þetta bölvað
skran. Ég hef setið og sofið allan tím-
ann.
Uppboðshaldarinn: Já, en þér hafið
kinkað kolli við og við.
*
Listmálarinn: Þetta er mjög dýr-
mætt málverk, en ég skal selja yður
það 25% lægra en verðið er á sýning-
arskránni.
Skotinn: Seljið mér sýningarskrána
með 50% afslætti.
Nýtízku tæki.
Framhald af bls. 79.
góðan og vel með farinn fisk, enda
eru þeir harðfengnir fiskimenn
á traustum skipum. En það er
viðurkennt, að framfarir geta
ekki orðið með því að lifa á
fornri frægð einni saman. Með
því að koma sér upp virkari veiði-
tækjum og fullkomnari búnaði,
ná þeir tökum á nýjustu veiði-
aðferðum. Nú verða menn ekki
fiskimenn af því að þeir hafa
ekki um neitt annað starf að
velja. Nokkru af stritinu og þræl-
dómnum verður að létta af fiski-
mönnunum, eigi þessi atvinnu-
grein að laða að sér rétta gerð
ungmenna. Lífið getur aldrei orð-
ið erfiðislaust, en sum erfiðustu
verkin má láta vélarnar gera. En
framar öðru, verður að tryggja
að nýliðar fái umbun fyrir tækni-
lega kunnáttu, greind og leikni í
starfi, en ekki einungis fyrir lík-
amlegan styrk.
Nýliðar treysta því, að þeir fái
tækifæri til viðunandi þjálfunar
í starfi. Það er ekki við hæfi nú
á tímum, að þeir verði að tileinka
sér kunnáttu við störfin á snöp-
um, þ. e. án tilsagnar. Það er ef
til vill tímanna tákn að fyrirhug-
aður fiskiðnaðarháskóli, sem
fræðsluyfirvöld Aberdeenborgar
standa fyrir, mun hafa á stefnu-
skrá sinni sérstök námskeið fyr-
ir unga sjómenn bæði á togurum
og fiskibátum, (inshore section).
Þessi námskeið munu verða til
viðbótar þeim, sem þegar eru
starfandi í öðrum sjómannaskól-
um í Skotlandi til undirbúnings
undir Board of Trade seamanshvp
certificate“...
Það ánægjulegasta.
Án þess að vanmeta á nokkurn
hátt framlag opinberra stofnana
sem höfundur telur upp, segir
hann ennfremur: „Vér lítum svo
á, að þegar til lengdar lætur sé
það framtakssemi fjör og frjálst
framlag þeirra sem atvinnuveg-
inn stunda, sem er ánægjulegast
og skiftir meira máli en það, sem
leggja -þarf til frá óviðkomandi
aðilum“.
VÍKINGUR
88