Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1971, Page 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1971, Page 13
fióum, þó farin hafi verið einn leiðangur í því skyni á síðast liðnu ári. NOKKRAR NIÐURSTÖÐUR LOÐNURANNSÓKNA Þessi grein er mjög athyglis- verð. í henni stendur meðal ann- ars, með hliðsjón af rannsóknum: Að ljóst sé að allmikið loðnumagn muni ganga til hrygningar við suðurströndina á næsta ári og hrygningin hafi tekizt vel árið 1969. En athyglisverðasta í þess- ari grein e rþað að spáð er góðri loðnuveiði árið 1971 og 1972. Þetta eru gleðileg tíðindi og færi betur, ef spáð væri um fleiri fiskitegundir. Þó við íslendingar séum stórtækir í okkar fiski- stofna, virðist þessi fiskur eiga eftir að færa okkur mikla björg í bú á næstu árum. En ég held að meira mætti fylgjast með upp- vexti loðnunnar í fjörðum og flóum en gert er. RANNSÓKNIR Á UNGFISKMAGNI I þessari grein er minnst á nýja aðferð til könnunar á fisk- ungviði. Norðmenn byrjuðu með hana árið 1963. Frá því 1965 hafa árlega farið fram sameigin- legar rannsóknir Englendinga, Norðmanna og Rússa í Barents- hafi. Þessi aðferð hefur reynzt vel til upplýsinga um magn ung- fisks. Islendingar hafa tekið þátt í þessum rannsóknum í tvö ár og ættum við íslendingar að vænta mikils árangurs af þess- um rannsóknum næstu árin. Fleiri greinar eru í þessu riti, t. d. veiðafærarannsóknir og rækjuleit. Ég skora á sjómenn að kynna sér þetta rit, sem kemur út árlega. Vænti ég þess, að það sé fáanlegt hjá Hafrannsóknar- stofnuninni. S. Ó. S. NÝLEGA var nýju skipi hleypt af stokkunum hjá Búsumer Werft í Þýzkalandi. Var skipið skírt Hvassafell og er í eigu Skipadeildar SÍS. Þetta er þriðja skipið á þessu ári, sem skipadeildin endurnýj- ar. Fyrst í sumar keypti sam- bandið nokkurra ára gamalt olíuskip og á það og rekur í sameiningu við Olíufélagið. Þá lét skipadeildin smíða nýtt frystiskip, sem gefið var heitið Skaftafell, kom skipið hingað til lands á þessu hausti. Hvassafellið verður afhent eigendum til notkunar 18. des. n. k. Skipið er 2600 lesta al- mennt vöruflutningaskip með milliþilfari, það er 80 m langt og djúprista þess fulllestað verður 5,80 m. Rúmtak lesta er 131.000 teningsfet. Gang- hraði verður 14 sjómílur. Heimahöfn verður Akureyri. Tuttugu og fimm ár eru nú liðin síðan SÍS hóf skiparekstur sinn. Hóf félagið reksturinn með skipi, sem það keypti og nefndi Hvassafell. Var skipið ítalskt og reyndist hið mesta happaskip. Með stofnun skipadeildarinn- ar var stigið merkilegt spor. Hafa skip félagsins yfirleitt flutt vörur erlendis frá beint til viðtakenda úti á ströndinni. Þá hefur félagið veitt sjómönn- um mörgum mikla og góða vinnu og hafa samskiptin verið prýðisgóð. Sjómannablaðið Víkingur ósk- ar SÍS allra heilla með skipin og framtíðina. Myndirnar voru tcknar við sjósetn- ingu Hvassafells. Hjörtur Hjartar framkvæmdastjóri, er yzt til vinstri á myndinni og við hlið hans fulltrúi skipasmiðastöðvarinnar, þá Ingigerður Karlsdóttir og Guðrún Hjartar, tveir Þjóðverjar og yzt er Hjalti Pálsson framkvæmdastjóri. VÍKINGUR 345

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.