Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1971, Síða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1971, Síða 15
„Ásgeir Litli“ var eign Ásgeirsverzlunar á ísafiröi, keyptur 1890 og notaður til vöru- og fólksilutninga aðallega um Isafjarðardjúp. þessar mundir var fremur hörg- ull á skipstjórnarmönnum vestra, og þeir voru tekjuháir (höfðu ráherralaun, eins og vestfirzkt blað orðaði það), og höfðu að því leyti ekki hagsmuna að gæta. 1 öðru lagi áttu margir skipstjór- ar hlut í bátum og voru þannig í senn skipstjórnarmenn og út- gerðarmenn, en þessi sjónarmið hafa þá og síðar átt erfitt að samlagast hlið við hlið, enda varla hægt. í þriðja lagi hafði það lengi verið lenzka vestra, að skipstjórar voru jafnframt bændur, fóru víðsvegar um Vest- firði til búa sinna, og gefur auga leið, að það var blátt áfram eng- in grundvöllur fyrir félagsstofn- un, sem gæti látið til sín taka nema þá í smámálum, svo sem fyrirkomulagi á innsiglingaljós- um og öðru slíku. ,,Bylgjan“ starfaði um skeið af allmiklum krafti, gerði margar og merkar ályktanir, og stóð m. a. fyrir kappmótum í línu- beitingu, afhausun og flatningu. Eru um þetta nákvæmar reglur, en ekki er mér kunnugt um að keppnir í þessum greinum öllum hafi verið haldið uppi annars- staðar öllum, þótt ég viti um t. d. beitingakeppnir víðar. Eins og þar segir: Höggorm- VlKINGUE urinn leynist í Paradís. Ekki hafði félagið lengi starfað, þegar stjórnmál tók að bera á góma, auk þeirra mismunandi viðhorfa til smærri mála, sem sífellt eiga sér stað í félagasamtökum. Um þessar mundir hefja göngu sína á ísafirði tvö blöð: Skutull og Vesturland, jafnaðarmenn og íhaldsmenn. Þar með var hafinn sá pólitízki darraðardans, sem ísafjörður var um skeið rómaður fyrir, að ég ekki kveði fastara að orði. Vafasamt tel ég að nú þætti sumt það tækt í blöð nú, sem þótti næstum til skemmtun- ar á árunum 1921 og allt fram undir 1930 (hinn frægi flutning- ur á Hannibal Valdimarssyni frá Bolungavík til ísafjarðar varð reyndar ekki fyrr en 28. maí 1932, og kraumaði þá hressilega í hinum pólitízka potti). f „Bylgjunni“ hafði þetta stjórnmálastríð þau áhrif, að félagsmenn tóku að deila, og það hart hver á annan á opinberum vettvangi. Má þá m. annarra nefna Karl Löve, Guðmund Þor- lák, Magnús Vagnsson, Guðmund Júni, Guðmund frá Tungu og fleiri. Hins má nærri geta hver áhrif þetta hafði á samkomulag innan jafnfámenns félags. Svo fór að í nóvember er hald- inn fundur í „Bylgjunni", og síðan ekki fyrr en 1. febrúar 1929, og er það Halldór skip- stjóri Sigurðsson, sem á frum- kvæðið að því. Á þeim fundi er rætt um að „endurreisa“ félagið, en það tel ég hæpið orðalag. All- an tímann hafði félagið verið til með sama nafni, sömu stjórn þótt hún starfaði ekki, gripir félagsins eru til og reikningum haldið áfram eins og ekki væri. Reyndar skiptir þetta orðlag ekki máli, það er nánast smekks- atriði. Það voru krepputímar á þess- um árum og útgerð dróst saman. Bátar voru seldir frá ísafirði, en sumir fórust, Rask, Njörður, Leifur, Gissur hvíti, Sólveig, en a. m. k. þrír félagsmenn dóu á sjúkrasæng. Þetta allt var blóð- Gamla bátalagið. Báturinn heitir Fram og stendur uppi á kambi í Hr.nsdal. 347

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.