Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1971, Síða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1971, Síða 27
þreifa fyrir sér þar til hún fann vögguna, og lagðist niður við hliðina á Adriano, í þeirri trú að það væri eiginmaðurinn. Adri- ano, sem ekki var sofnaður aftur, veitti henni hjartanlegar viðtök- ur og losaði þegjandi í hana fleiri kornhleðslur, henni til mikillar velþóknunar. Um þetta leyti fór Pinuccio, að óttast að svefninn yfirbugaði hann við hlið stúlkunnar sinnar, svo að allt kæmist upp, lagði af stað að rúmi sínu, en þegar hann rakst á vögguna fyrir framan það, hélt hann að það væri rúm hjónanna, svo að hann gekk nokkur skref áfram, og lagðist niður við hlið bóndans, sem hann hélt að væri Adriano, en við það vaknaði bóndinn. — Þú getur bölvað þér upp á, að önnur eins stúlka finnst hvergi í heiminum eins og Nicco- losa, hvíslaði Pinuccio til Adri- anos, sem hann hélt vera, — og guð veit að ég er búinn að keyra sex sinnum í hana síðan ég fór frá þér. Húsbóndinn gladdist ekkert við þessar fréttir og hugsaði fyrst með sjálfum sér: „Hvern fjandann er hann að gera hér?“ og sagði svo hátt, en af minni hugsun: — Þú hefur hagað þér skamm- arlega, Pinuccio, og ég get ekki skilið, að þú skulir haga þér þannig gagnvart mér, en svo sannarlega sem guð er til, skaltu fá þetta borgað! Pinuccio, sem enn hafði ekki til- einkað sér mikla veraldarvizku, skyldi strax að honum höfðu orðið á einhver mistök, en hugs- aðist ekkert ráð, til þess að bæta úr því á einhvem hátt, en sagði: Hvað ætlarðu að borga mér fyrir? Hvað getur þú gert mér? VlKINGUR Kona gestgjafans sagði þá við Adriano, í þeirri trú að þar væri maður hennar: — Heyrirðu, að gestirnir okk- ar eru að deila, en Adriano svar- aði hlæjandi: — Látum þá um það, þessir aular hafa fengið sér heldur mikið tár við þorstanum í gærkvöldi. Þegar konan heyrði rödd manns síns og Adrianos sam- tímis, skyldi hún strax, hvar og hjá hverjum hún var, reis strax upp án þess að segja eitt ein- asta orð, greip vögguna og þreif- aði sig áfram að rúmi dótturinn- ar og lagðist upp í hjá henni og kallaði til manns síns, hvað væri að honum og Pinuccio þar sem þeir vektu alla með hrópum. — Heyrirðu ekki hvað hann segir, að hann hafi gert við Niccolosa í nótt? spurði maður- inn, en konan svaraði: Hann skrökvar því, að hann hafi legið hjá Niccolosa, því að ég lagðist sjálf upp í hjá henni, þegar ég gat ekki sofnað, og þú ert bjáni, ef þú trúir honum. Þið drekkið svo mikið að kvöld- inu, að ykkur dreymir alskyns hreyfingar, og ráfið um á nótt- unni án þess að vakna; og svo eruð þið alveg undrandi! Þið ættuð skilið að detta á hausinn og hálsbrjóta ykkur; en hvað er Pinuccio að gera uppi í hjá þér? Hvers vegna er hann ekki í sínu eigin rúmi? Og nú hrópaði Adriano úr sínu rúrni, sem skyldi strax að kon- unni hafði tekizt á snilldarlegan máta, að leyna eigin hneyksli og dóttui’innar: — Hef ég ekki hundrað sinnum sagt þér Pinuccio, að þú átt ekki að vera að þessu næturrölti, því að það gæti endað með ósköpum, ef þú héldir áfram að ganga í svefni og rausa um það sem þig hefði verið að dreyma, eins og það hefði raunverulega átt sér stað. Komdu nú strax aftur, og skrattinn haldi vöku fyrir þér. Þegar bóndinn heyrði hvað kona hans og Adriano sögðu, taldi hann víst, að Pinuccio væri raunverulega að dreyma og fór að hrista hann til, og kallaði: — Vaknaðu, Pinuccio, og farðu aftur í rúmið þitt! Pinuccio hafði einnig áttað sig á öllu sem sagt var, og fór nú að rausa um allskyns vitleysu, eins og maður sem talar í svefni og kom bóndanum til þess að skellihlæja. Loks lét hann eins og hann væri að vakna, og hrópaði til Adriano: — Er strax kominn dagur, eða hvers vegna ertu að vekja mig? Og Adriano svaraði, auðvitað — og komdu strax hingað yfir. Og Pinuccio reis upp úr rúmi gestgjafans, til að sjá í svefn- rofunum, og staulaðist yfir til Adriano. Þegar birti af degi, fóru allir að rísa úr rekkju og bóndinn að stríða Pinuccio með draumum hans, síðan týgjuðu hinir ungu menn hesta sína við mikla kát- ínu, og drukku skilnaðarskál með bóndanum. Síðan riðu þeir af stað til Firenze, ekki síður á- nægðir með þróun ævintýrisins, en árangurinn. Síðar fundu Pin- uccio og Niccolosa upp aðrar leiðir til þess að geta verið sam- an, og stúlkan fullyrti við móður sína, að Pinuccio hefði raunveru- lega dreymt þetta allt. Að lokum fór konan að trúa því, að það hefði aðeins verið hún sem hefði lent vakandi í ástarævintýri, því að faðmlögin og þrýstingurinn við hana voru örugglega enginn draumur. 359

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.