Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Page 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Page 5
sem berst við fárviðri á hafi, er dá- lítið sér á parti, átakanlegri en nokkuð sem ég hefi reynt, og þegar storminn lægir og allt virðist kom- ið í samt lag, þá finnur þú að heimurinn er ekki samur. Ég var tvö sumur á Gunnu, og þá voru nýir tímar að fara í hönd. Fyrstu togararnir voru að koma og þá voru örlögin í rauninni ráðin. Ég ætlaði á togara og þangað fór ég 15 ára að aldri. III. Eldeyjar-Hjalti var skipstjóri á gamla Apríl og með honum var ég fyrst. Hjalti var stórkostlegur maður að vera með til sjós. Hann var vel gefinn, stór í sniðum og skemmtilegur og alltaf var eitt- hvað að gerast. Hann mátti aldrei sjá bjarg, nema skreppa í land. Við sóttum egg í björg víðsvegar og það var alveg furðulegt að sjá hvað hann gat klifrað. Hann rann upp slétta bergveggi, þótt kominn væri af léttasta skeiði og ungir vaskir menn stóðu einsog stórgripir í fjörunni meðan Hjalti flögraði um bergið og hirti eggin. Stórkostleg- ast var þó að sjá aðfarirnar í Látrabjargi, það virtist varla vera mennskt. Hann kleif þrítugan hamarinn. Það er auðvitað frægast þegar Hjalti kleif Eldey, sem talin var ókleift bjarg, en ég er viss um að hann hefur farið létt með það, og svo mokaði hann líka upp fiski þannig að hann komst í efni og til mikilla virðinga, maður sem byrj- að hafði með tvær hendur tómar úti í Vestmannaeyjum. — Hvernig var kaupið? — Það var litið kaupið þá. Fimmtíu krónur á mánuði og 10 krónur fyrir tunnuna af lifur, en það var ekki minna en hjá öðrum, svo mikið var víst, og mikið var veitt. Þarna er fallegum fiski landað. Stundum eru menn að tala um að skipin séu orðin of mörg, að minnsta kosti miðað við fiskinn, en í gamla daga voru skipin líka mörg og ekki öll af verri sortinni. Ég man það til dæmis þegar við vorum að sigla undan stormi í var við Vest- mannaeyjar, þá var þetta einsog borg. Tugir eða hundruð skipa af öllum gerðum í einum hnapp. Franskar skútur, útlendir togarar og skonnortur innanum íslensku skipin og ljósadýrðin var einsog í stórri borg. Svo þegar hann hægði seig þessi ósigrandi floti frá landi og lagði á djúpið til veiða. — Þetta voru miklir tímar og ég varð þarna að manni, þekktum togaramanni, einsog það var kall- að í þá daga, en þá voru togara- menn stétt sem fólkið leit upp til, vegna atorku og dugnaðar. Ég hafði metnað til vinnu og þó það skipti ekki máli nú, þá lagði ég mig allan fram við þessi störf. — Þó hafði ég mína sérstöðu, ég átti bát og honum fargaði ég ekki, heldur sótti sjó á honum vissan hluta ársins og þeim sið hélt ég alla mína tíð, hvort sem ég vann í landi eða var á togara, vissan hluta árs- ins og milli túra, þá reri ég á min- um eigin bát hérna í bugtina. IV. — Átta ár á Skallagrími með hinum kunna aflamanni Guð- mundi Jónssyni voru merkileg reynsla. Guðmundur er líklega frægasti aflaskipstjóri okkar fyrr og síðar, og menn hafa löngum velt fyrir sér hvers vegna hann náði svona góðum árangri. Ég held að eitt mikilsverðasta atriðið hafi verið nákvæmnin. Hann fiskaði eftir miðum í landi, setti sig niður af mikilli nákvæmni og renndi sér síðan með hraunköntunum. Menn segja að þetta hafi verið upp á meter hjá honum. Fleiri skipstjór- ar kunnu þetta, að þræða hraun- kantana og rásir og .bolla inn í hraunin. Einn þeirra var til dæmis Nikulás Jónsson, sá frægi bugtar- skipstjóri. Þeir sögðu að stundum hafi verið svo þröngt um trollið, að hann varð að hífa það upp til þess að snúa skipinu. Nú ef menn fara yfir hraun, þá rifnar varpan einsog allir vita. Þetta gátu þessir menn VÍKINGUR 333

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.