Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Blaðsíða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Blaðsíða 15
dag hefur ekki aðeins verið erfitt og vanmetið, það var og er líka ein styrkasta stoð lífsins í landinu. Það eru sjómennirnir sem afla hráefn- anna er ríkidæmi okkar byggir á. Þeir færa að landi afrakstur strits síns og svita, fiskinn sem skapar okkur öllum tekjur. Og taka aftur við afurðunum og flytja á erlendan markað, þar sem örlög okkar eru beinlínis ráðin af söluverðmæti hvers fiskfarms. Hér verður ekki reynt að leiða heimspekileg rök að þeirri fullyrð- ingu, að gildi sjómannastéttarinn- ar sé afgerandi, þannig að án hennar væri ekkert ísland, að þar komi ekkert í staðinn. Þess i stað skulum við athuga lítið dæmi, þar sem tölurnar segja fleira en ótal orð og gefa kannski enn fleira í skyn: Árið 1973 unnu aðeins 13% landsmanna að fiskveiðum og vinnslu sjávarafla. Þetta sama ár var útflutningsframleiðsla lands- ins á tímabilinu jan.—okt. samtals að verðmæti 25.558 milljónir króna- Þaraf voru sjávarafurðir að verðmæti 19.300 milljónir króna, eða um 75% af útfluttum verð- mætum þjóðarinnar. Getur svo hver fyrir sig metið og vegið gildi sjómannastéttarinnar fyrir efna- hagslega afkomu landsins. Þrátt fyrir staðreynd sem þessa, vantar mikið á að skilningur al- mennings á nauðsyn og gildi þess, að vel sé búið að sjávarútvegi og sjómönnum sé sem skyldi. Al- menningur í landinu er enda hóp- ur þarsem þjónustustéttir eru i miklum meirihluta og sjómanna- stéttin hefur takmörkuð áhrif eins og málum er háttað í dag. Svo oft hefur enda gengisfelling verið réttlætt á þeim forsendum að „bjarga“ verði sjávarútveginum, eins og hann sé einhver allsherjar dragbítur á kerfinu, að engan þarf að furða þó almenningur sjái sér lítinn hag í slíkri útgerð að óat- huguðu máli. Hitt gengur fólki verr að skilja, að þar sem sjávar- afurðir eru helstu útflutningsverð- mæti okkar, hljótum við að meta gildi krónunnar á hverjum tíma í samræmi við markaðsverð þeirra, eða að öðrum kosti að hækka og lækka kaup á sama grundvelli. Þ.e.a.s. þegar svo er komið, að við viljum kaupa mun meira að utan en útlendingar vilja af okkur kaupa er gengi krónunnar of hátt, gildi hénnar er ofmetið. Við getum nefnilega ekki beitt þeim kristilegu viðskiptaháttum á heimsmarkaði sem innanlands, að framleiðandinn fái það fyrir vör- una sem hann fullyrðir að nauðsyn bjóði svo hann hjari í „bíssnessn- um“. Þó virðast margir halda, að öllu megi bjarga á þann einfalda hátt að loka bara frystihúsunum og leggja flotanum. þeir hinir sömu ætla þá sennilega að sætta sig við rúmlega helmingi minni út- og innflutning; rúmlega helmingi minni tekjur. I dag er heimsmarkaðsverð á framleiðsluvörum okkar í lægra lagi, og af því súpum við öll seyðið eða ættum að minnsta kosti öll að gera. Samtímis er útlitið svart í fiskveiðimálum. Það leggur því ekki alltof mikla birtu innum ljór- ann okkar nú. En hvað gerist svo þegar verðið á framleiðsluvörum okkar rýkur upp á heimsmarkaði? Er þá staða sjávarútvegs tryggð rækilega og hlutur sjómanna viðurkenndur. Það skyldi þó aldrei vera að fyrst séu laun bankastjóra hækkuð og byggðir fleiri bankar? Og hvers- vegna er það, að alltaf eru til pen- ingar í járnblendi og álverksmiðjur en ekki aur fáanlegur til fiskrækt- ar? Kannski vegna þess, að við lif- um á járni og töpum á fiski og fiskvinnslu. Það skyldi þó aldrei vera? Sumir vilja kannski skilja mál mitt sem svo, að hagsmunir sjó- manna og útgerðarmanna fari alltaf saman. Svo er vissulega ekki, en sameiginlegir hagsmunir þeirra felastþó í því, að gildi sjómennsku og sjávarútvegs sé viðurkennt í verki. Annarlegir hagsmunir verða alltof oft ofaná í þjóðstjórnmálum eins og kerfið virkar nú, og því verður að breyta. Hitt er svo annað mál, og sást gjörla hér að framan, að kjör sjómanna voru afar ill allt fram til þess að til stéttaátaka kom hér í landi, og sjómenn tóku höndum saman í baráttunni við arðræningjana. Og sú barátta stendur enn. Þeim mun hættulegri er sú þróun á íslandi í dag, að samtök sjómanna skuli ekki standa fyrir útgáfu og fræðslustarfsemi svo vit sé í, en slík starfsemi all- nokkur frá hendi þeirra sem við er barist. VI Það var einhvern tíma sagður sá brandari, að vélstjórar á sjó hafi neitað að skrifa undir kjarasamn- ing þar sem kröfu þeirra um „glugga á mót suðri“ var ekki sinnt. Þessi saga lætur lítið yfir sér þegar til alvörunnar kemur — og þó... Gefur hún ekki einmitt ákaf- lega fínlega til kynna, að saman- burður á kjörum sjómanna og landkrabba er oftar en ekki fárán- legur. íslensk sjómannastétt verður aldrei efld hvað mannskap, getu eða áhrif snertir, nema kjör hennar verði leiðrétt á þann veg að sjó- mannsstarfið verði eftirsóknarvert og þarmeð nægilegt framboð á hæfum mönnum. Ennþá er það svo að sjómennskan er að óeðlilega stórum hundraðshluta íhlaupa- vinna þar sem alltof lítill hluti hæfra manna verður um kyrrt. Hver láir líka dugmiklum og greindum manni, að velja landið þegar hann getur haft þar lítt skertar tekjur og oft ekki minni fyrir helmingi styttri vinnudag, /ÍKINGUR 343
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.