Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Blaðsíða 26
— og berhöfðaður í orðsins fyllstu merkingu. Hann lét nefnilega bátsmanninn krúnuraka sig fyrir svona „hugguleg kvöld“. Mér fannst hann nauðalíkur núbíumanni af stærstu tegund, með gljáandi skallann og hinar feikilegu axlir. Stundum kom það fyrir, að við reyndum að vera með Pedda á þessum huggulegu kvöldum. Það var óneitanlega dálítið freistandi að vera í nálægð manns með út- troðna vasa. Og svo sannarlega sparaði hann ekki drykkinn. Hann borgaði allt, sem pantað var, en þarmeð var „selskapurinn“ búinn. Það var ekki af því, að hann væri í slæmu skapi. Hann sagði aldrei orð, var bara svona gerður. Og einsog gefur að skilja getur enginn haldið út að drekka með manni sem borgar alltaf, en heldur svo kjafti. Endirinn varð líka sá að við hypjuðum okkur burt og hann fékk að eyða „huggulegu kvöldi“ aleinn. Eftir því, sem ég hefi sagt af Pedda til þessa, gæti maður haldið, að hann kæmi tómhentur um borð þegar á nóttina liði. En það var nú eitthvað annað. Kannski með tóma vasa, en aldrei tómhentur. Hann kom á- vallt um borð með eitthvað þungt í fanginu. Gamall vani, hugsaði ég með sjálfum mér. Hann kom, berandi ótrúlegustu hluti, sófa eða stóra hægindastóla. Eitt sinn kom hann með heljar- stórt matborð á öxlunum og undir annarri hendinni hélt hann á sof- andi negra. Fyrst bar hann borðið og setti það mjúklega niður á aft- urlúkuna, sótti síðan negrann og lagði hann til, með krosslagðar hendur á brjóstinu. Að því búnu skreið hann hljóð- lega í koju sína. Það var rétt einsog að hann hefði skroppið til kirkju! Við höfðum stundum töluverð óþægindi af þessum húsgögnum, 354 sem hann flutti með sér um borð. Þau voru alls ekki frá neinni hús- gagnaverslun. En hvaðan svo sem þau komu, voru þau morandi í veggjalús. Við höfðum aldrei fengið svona þægileg sæti á þilfari. En þeir sem notuðu hægindin voru bitnir, svo að það ráð var tekið að lauma þeim fyrir borð að næturlagi, því ströng viðurlög lágu við því að fleygja neinu í höfnina. Engrar aðstoðar var að vænta frá Pedda. Honum var skítsama um allt draslið þegar hann hafði borið það um borð. Hann sá það ekki. Að undanteknu einu tilfelli. Það var þegar negrinn lá ,,dauður“ undir matborðinu á þil- farinu. Þegar Peddi kom auga á negrann, sá ég hann reiðast, í fyrsta sinn. Hann kraup á kné og framleiddi slíkt ógnarhljóð sem helst mætti líkja við það, sem myndast þegar gufan blæs af dunkukatlinum. En þá vaknaði líka sá svarti og þegar hann sá Pedda þaut hann einsog eldibrandur í land. „Hann stakk krumlunni í rass- vasann minn,“ sagði Peddi á sinn rólega hátt. Honum var víst ekkert sérlega illa við negra, svona yfir- leitt. Svo var það í annað skipti. Það var í steikjandi hita í höfn við Persaflóa. Þá hafði Peddi tekið út „hvert einasta cent“. Á þessum stað hlýtur hvert ein- asta húsgagn að hafa verið nagl- fast, eða að það fyrirfannst ekki, sem er öllu trúlegra, því Peddi kom aftur tómhentur um borð. Ekki með svo mikið sem körfu- stól! Hinsvegar hélt hann á stórum bjórkút þegar hann kom að varð- hliðinu. Nú voru á þessum stað varð- menn í hliðinu, vopnaðir skamm- byssum og sverðum og stranglega var bannað að fara með drykkjar- vörur um borð. Ekki einusinni bjór. En það var ekki fyrr en þeir höfðu ógnað Pedda með byssum og sverðum, að hann lét kútinn frá sér og meðan tveir varðmenn fylgdu VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.