Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Blaðsíða 10
komu veikindi. Þá seldi ég á Lind-
argötunni og keypti fyrir meðöl.
Svo kom heilsan aftur og við
keyptum fokhelt á Kleppsvegi 40
og með einhverjum kraftaverkum
komst þetta upp hjá okkur, og var
það mest dótturinni að þakka,
hversu vel þetta gekk. Ég sé ekki
eftir húsunum á Lindargötunni,
það þarf mikil meðöl í löngum
veikindum og við höfum það gott
hér. Konan hefur góða vinnu, en
ég sit heima.
Oft hugsa ég um sjóinn og ég
veit ekki betur en ég fari eina ferð
með þessum nýja, sem þeir eru að
byggja suður í Kópavogi fyrir
hann Ara. Ég þarf að segja þeim
til, kenna þeim miðin, sem notuð
voru um aldir. Hamarinn meiri og
Hamarinn minni og allt það og svo
norður í Forir.
Fisktrönur í Skuggahverfinu í Reykjavík. Frans fæddist í því hverfi, og bjó
þar lengstaf.
KALDHÆÐNI
ÖRLAGANNA
Fyrir nokkrum árum gafst hin heimsþekkta
breska Cunard Star Line upp á því að gera út
hið 81 þús. tonna skemmtiferðaskip Queen
Elisabeth, vegna milljóna tapreksturs.
Nokkrir auðkýfingar í Hong Kong keyptu
svo skipið. Var því siglt þangað, lagt við land-
festar og breytt í fljótandi hótel.
Myndin sýnir móttökuathöfnina, þegar
skipið sigldi inn á höfnina í Hong Kong.
Allt slökkvilið hafnarinnar var mætt og
brunadælurnar þeyttu sjónum eins hátt og þær
orkuðu skipinu til heiðurs. ■
Örlög þessa fræga skips, sem flutt hafði 800
þúsundir hermanna yfir hafið á stríðsárunum
án þess að hlekkjast á, urðu þau, að eldur varð
laus. Það brann og ónýttist, þrátt fyrir að allt
slökkvilið hafnarinnar með sínum sterku dæí-
um gerði sitt ítrasta til að bjarga því. Kald-
hæðni örlaganna!
338
VlKINGUR