Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Side 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Side 34
Nýtízku gámaflutningar. VÍKINGUR renna undir Esbjerghöfn. Með tímanum breytast flutningarnir, ekkert stendur óhaggað í tímans rás: frá lifandi nautpeningi, sem óstyrkum klaufum tróð um borð í áttina að enskum sláturhúsum, frá svínaskrokkum í grisjupokum — til gáma nútímans. Varningur- inn er sem áður hinn sami og markaðurinn iðnríkið England. Þannig fylgjast að höfnin í Esbjerg og danskur landbúnaður. Útflutningurinn varð fyrsti vísir Esbjerghafnar, en innflutningur- inn fyrir landbúnaðinn rak smiðs- höggið til núverandi myndar. Þar varð þó að byrja á byrjuninni, og áratugir liðu áður en Esbjerg hafði tryggt sér öruggan sess, sem inn- flutningshöfn. Við aldamótin jókst kaupgeta landbúnaðarins, mykjan þokaði fyrir tilbúnum áburði, eftir áburðinum fylgdu margs konar fóðurvörur. Þessi þróun hefur ver- ið stöðug síðan, að vísu hafa aftur- kippir komið á tímum styrjalda og kreppu. Upp úr 1960 varð þróunin stórstíg, eins og síðar verður vikið að. Við inngöngu Dana í Efna- hagsbandalag Evrópu, tók vöxtur hafnarinnar í Esbjerg mikinn fjör- kipp, en inngangan jók markað danskra landbúnaðarvara stórum. VIÐHORFIN NU Um höfnina í Esbjerg fer veru- legur hluti þeirra vara, sem danskur landbúnaður þarfnast. í fóðurverksmiðjum í Esbjerg er innflutt fóður blandað, sem síðan skilar ríkulegum arði i mjólkur- og kjötvöruframleiðslunni. Til Es- bjerg koma ódýrar hitaeiningar, frá Esbjerg fara dýrar hitaeining- Hinn „risinn“ KFK. ar. Þessi hringrás matvælafram- leiðslunnar er knúin mörgum hjólum, og auk beinna flutninga um Esbjerghöfn snerta þau ekki fá líf og afkomu manna í Esbjerg- borg. Spark óstyrkra klaufna hefur breytzt í þungan nið iðju og at- hafna. Upp úr 1960 þótti þörf á að koma flutningum á svínafleski í betra horf. Farið var að flytja flesk á Englandsmarkað eingöngu í gámum. Reist var mikil miðstöð fyrir þennan útflutning við höfn- Flutningar frá fóðurverksmiðjum eru mjög greiðír. 362

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.