Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Síða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1976, Síða 6
Skipshöfnin á togaranum Skallagrími R.E. 145 1924. Guðmundur Jónsson, skipstjóri. og höfðu ekki annað en mið í landi og handlóð til þess að styðjast við. Guðmundur á Skalla var líka fleira, hann ól upp fiskimenn. Stýrimenn frá honum voru öruggir með að fá skip. Þeir lærðu þar list- irnar og fiskuðu margir mikið upp frá því. Meðal stýrimanna, sem þarna voru i minni tíð voru t.d. Pétur Maack, Kolbeinn Sigurðs- son, Sigurður á Geir, Jón Otti og Kristján Scram. Milli ljósanna? Jú, við fórum milli ljósanna og renndum á dallinn miðjan og hann sökk. það var hræðilegt og átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þetta byrjaði með því að við á Skallagrími vorum að fiska fyrir vestan. Guðmundur á Reykjum, einsog hann var oft kallaður var skipstjóri en var í fríi þennan túr. Við fengum svarta byl rétt fyrir jólin, 1923 að mig minnir, þá allt í einu brælir hann heldur bet- ur upp á Halanum og stímuðum við uppundir undan veðrinu. Ég var á vakt, og svo var ég sendur frammí til þess að ræsa um morg- uninn. Veðrið var mjög vbnt og haugasjór. Það kom ólag á skipið, ekki mjög slæmt og ég tók lagið, sem venjulega er eftir svona ólög og hraðaði mér fram þilfarið. Þá allt í einu hefur hann upp þennan voðalega sjó, himinhár bakki hvolfdist yfir skipið og ég tók það ráð að kasta mér undir pokann, sem var fram í kassa og ósköpin dundu yfir. Það fór allt í mask, björgunarbáturinn brotnaði, rúð- ur í brúnni og lanternan fór af. Mér tókst með einhverjum helj- ar krafti að halda mér föstum og brotnir plankar og fleira dót rakst utan í mig, og þegar loks fór að fjara, fikraði ég mig fram í lúkar, eða fram að hvalbaknum og þar var hurð, sem ég opnaði og lokaði síðan á eftir mér til þess að sjór flæddi ekki inn í skipið. Þarna var lúga niður í lúkarinn og streymdi sjórinn í tonna vís niður og ég heyrði veinin í mönnum, sem nú höfðu vaknað við vondan draum. Það lá við að þeir bara drukknuðu þarna niðri einsog rottur, en þá fór gamli Skalli að lyftast hægt upp úr þessum ósköpum og þeir gátu lensað hann þurran og segir ekki af ferðum okkar fyrr en komið er suður til Reykjavíkur. Alla leiðina hafði verið blind bylur. Þá var ekkert að fara eftir nema kompásinn og ekkert sást framundan nema bylur og kóf. Skipstjórinn stóð uppi sem lög gera ráð fyrir, nema seinasta spöl- inn inn Faxabugtina, að stýrimað- urinn var á verði. Þegar við komum til Reykjavík- ur var dimmt að nóttu, algjört svartnætti og hvergi var nokkur skíma. Höfnin var ekki til þá og nokkur skip lágu við festar á ytri höfninni. Ég veit ekki hversvegna stýrimaðurinn lét nú ekki ræsa 334 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.