Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Blaðsíða 34
Daginn fyrir farmai
Myndirnar hér á opnunni voru
teknar rúmum sólarhring áður en
verkfall yfirmanna á farskipum
hófst, en það var á miðnætti að-
faranótt 25. apríl. Samninganefnd
FFSÍ er þarna saman komin í
ToIIstöðvarhúsinu í Reykjavík, og
eins og myndirnar bera með sér er
lítið að gerast í samningamálum.
Fundir deiluaðila með sáttasemj-
ara hófust 18. apríl og fram að
verkfalli höfðu verið haldnir 6
fundir. Út úr þeim fundum kom
nánast ekki neitt. Farmenn féllust
á að ræða tillögur Vinnuveitenda-
sambandsins um vinnutilhögun, en
þær viðræður leiddu ekki til sam-
eiginlegrar niðurstöðu, fyrst og
fremst vegna þess að samninga-
nefnd Vinnuveitendasambandsins
Þórður Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri Skipstjóra- og stýrimannafélagsins öldunnar
og Skipstjórafélags íslands, og Ingólfur Ingólfsson, forseti Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands: ERU SAMNINGAR I SJÓNMÁLI?
Til þeirra sem
safna Sjómanna-
blaðinu Víkingi
Margir hafa spurst fyrir á af-
greiðslu blaðsins um möppur
til að geyma blaðið í. Þær eru
nú til sölu á afgreiðslu blaðs-
ins og kosta kr. 1800 stykkið.
Komið eða hringið og við
sendum þær til ykkar í póst-
kröfu.
©
Ef til vill má greina þá í fjarska (með kíki)? Á myndinni sjást frá vinstri: Hlöðver
Einarsson, vélstjóri, Ingólfur Stefánsson, framkvæmdastjóri FFSl, Jens Jensson, stýri-
maður og varaformaður samningancfndar, Þórður Sveinbjörnsson, Baldur Halldórsson,
stýrimaður, Ingólfur Ingólfsson og Sveinn Valdimarsson, skipstjóri.
34
VÍKINGUR