Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Blaðsíða 49

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Blaðsíða 49
Ferð Theresu M. Bower: Elízabeth eyja DAG NOKKURN í ágústmánuði 1887, var stóra skonnortan Ther- esa M. Hower dregin út úr höfn- inni Noyo við NV-Kyrrahafs- strönd Bandaríkjanna. Þegar komið var hálfa aðra mílu frá landi, sleppti skipið dráttartaug- inni, setti öll segl og tók stefnuna í vestur, með norðvestan vind á stjórnborðsbóg. Skipstjórinn Elias Trevers var mjög gætinn maður og vildi fjarlægjast ströndina áður en stefnan yrði tekin til suðurs, því að ferðinni var heitið til Suður— Kyrrahafsins. í hlíðinni ofan við hafnar- mynnið stóð einmana, þrekvaxinn maður og sneri baki í vindinn. Þetta var ekki brosmildur maður, svona daglega, en nú brá fyrir glotti á hörkulegu andliti George Blakely, þar sem hann horfði á eftir skipinu kljúfa breiðar öldur Kyrrahafsins, því að hann einn vissi að gamla skonnortan myndi aldrei framar koma að ströndum Ameríku. Um borð í skipinu voru hin hefðbundnu verk unnin, við að gera „sjóklárt“. Kaðlar hringaðir niður, skipað í vaktir o.fl. Ferðin hófst á sama hátt og ótal aðrar á þessari stóru, gömlu skonnortu, og allt var einsog venjulega, að einu atriði undanskildu. Adam Smythe, meðeigandi skipafélags- ins Blakely & Smythe, sem átti skipið, sigldi með sem farþegi til Honolulu, í verðskuldað frí. Útgerðarfélagið byrjaði starf- semi sína með Theresu M. Bower, en hinir tveir félagar höfðu unnið sleitulaust í 10 ár við uppbyggingu starfseminnar, og félagið hafði getið sér nafn sem þekkt var orðið VÍKINGUR um alla vesturströnd Ameríku, allt vestur til Fiji eyja. Nú ætluðu þeir að leyfa sér hvíld frá störfum. George Blakely átti einn að sjá um fyrirtækið á meðan Adam og kona hans fóru til Hawaii, en þau ætl- uðu að koma til baka yfir Seattle. George myndi svo fara í frí í næstu ferð, þangað sem hann óskaði. Adam, maður á sextugsaldri, hafði eftir nákvæma íhugun kosið að ferðast með Theresu í fríinu. Elias Trevers var gamall skipsfé- lagi, sem hafði siglt með honum á þrímöstrungnum Taibahia á sín- um tíma, en var nú skipstjóri þarna um borð. Adam vissi að hann myndi gera ferð þeirra hjóna hina ánægjulegustu — miðað við og með tilliti til krafna um flutn- inga, — svo var hann ágætur sjó- maður. Trevers skipstjóri hafði við ýmis tækifæri látið í ljósi mikið álit á Adam Smythe og var haft eftir honum, að ef allir útgerðarmenn hefðu eins mikla þekkingu á sjó- mennsku samanborið við Blakely, sem hafði litla, myndu skipstjór- arnir ekki eiga í erfiðleikum með skýrslur sinar. Það varð ekki merkt á Blakely, að honum líkaði verr við suma skipstjóra félagsins, frekar en aðra, en hann var ekki vel liðinn af neinum þeirra, aðal- lega vegna vanþekkingar hans á skipum og sjómennsku. Hann var stór og myndarlegur maður, rúm- lega þrítugur að aldri og mjög dáður af veikara kyninu, þar á meðal hinni 26 ára gömlu Patriciu Smythe — konu Adams. Aður en Theresa lét úr höfn, hafði George Blakely fengið Patriciu lítið glas, með leiðbein- ingum um hve mikið af innihald- inu skyldi látið í mat Adams,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.