Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Blaðsíða 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Blaðsíða 37
báta er út og inn fjörðinn og skellirnir í vélunum bergmála í fjöllunum; klettaborgin sendir bergmálið rétta boðleið í bungu- fjallið og bungufjallið varpar því í fjallið hinum megin við fjörðinn; það er eins og fjöllin ræði saman, dimmum rómi og digurbarkaleg- um eins og slíkum öldungum sæmir. Nikolja er í góðu skapi og kveðst ekki ætla að bragða vín í þetta sinn, enda sé líka erfitt að nú í sprútt hér, það þurfi að panta það gegnum símann — frá Akur- eyri. „Nú ætla ég að sjá hvað hinir verða vitlausir,“ segir hann. „Nú ætlar Nikolja nokkur að vera maður fyrir sinn hatt.“ Út í skipið berast hvellir hlátrar stúlknaflokks sem saltar síld á stóru steinplani í fjöruborðinu. Gulir píramídar hlaðnir úr tunn- um rísa allt í kring og mislitir höfuðklútar stúlknanna blakta í sólskininu; menn og farartæki eru á ferð og flugi um þorpið, vagnar skrölta á teinum, silfurlit síldin iðar og vellur í rennum og þróm, bílskrjóðar flauta og svartir reyk- mekkir svífa hratt meðfram fjalls- hlíðunum — til hafs. Og flokkar sjómanna af ólíku þjóðemi þramma í rykmekki um þorpið, patandi út í loftið og tal- andi annarlegar tungur, fjörugir og hnellnir menn af túndrum Rússlands; síkátir og skrautgjarn- ir menn frá löndum víns og sólar, komnir allt frá Ítalíu og Spáni, loks ljóshærðir Norðurlandabúar, rósrauðir í framan af drykkju, kempulegir menn, valtir á fót- unum, laus höndin. „Bonjour, mam’selles, bon- jour!“ kalla Fransmennirnir til stúlknanna. „Bonjour, bonjour!“ Bros stúlknanna er óvenju hýrt í dag og hendumar liprar því að það á að halda ball í kvöld í því fræga húsi Hótel Villa Nóva. Þá verður mér litið upp þorps- götuna og sé hvar Nikolja mat- sveinn gengur upp Hesteyri í full- um eldhússkrúða; í þvengmjóu buxunum með rauðköflóttu svuntuna blaktandi — og hefur sett upp sparikaskeitið með hvíta kollinum. Hann hefur kaskeitið beint, ekki á ská eins og spjátr- ungamir; fas hans er einbeitt og ákveðið. Hér fer enginn veifiskati, hér fer Nikolja nokkur matsveinn, þekktur maður, í áríðandi erinda- gjörðum, að panta kost fyrir sitt skip — þarf að tala í gegnum símann. Og þama sem ég stend og fylgist með hinum ágæta mat- sveini verð ég vitni að hörmulegu atviki: Skyndilega er kallað. Nikolja nemur staðar. Maður gengur í veg fyrir hann, þrífur í hann. Nikolja streitist á móti; það varð handapat og læti, flaska á lofti, ryskingar, þá rykský og tvisvar glampi af gleri. Síðan hverfa þeir saman inn í port, dveljast þar drykklanga stund — og svo kemur matsveinninn aftur í ljós og hleypur nú við fót upp á símstöð þorpsins. Þá vissi ég hvað klukkan sló, fyrst hann fór að hlaupa. Og grunur minn reyndist réttur, því að dagur leið að kvöldi án þess að bólaði á Nikolja — og þar við sat unz Hlölli kom um borð um sex- leytið með þær fréttir, að það hafi verið eitthvað meira en bara brauðin sem Nikolja hefði pantað frá Akureyri, því að hann sæti nú öfurölvi uppi á Hótel Hesteyri og væri illur viðureignar. Mótorist- inn hikstaði og þótti viðeigandi að bæta við: „Ég skil ekkert í mönn- um sem drekka sig svona fulla.“ Sjálfur stóð hann varla á fótunum. Það var ekki um annað að gera en leggja land undir fót og hafa tal af matsveininum. Kvöldverðinn um borð varð að hafa til á réttum tíma. Ég hitti Nikolja einan í veit- ingasalnum. Aðra gesti var hann STÍGANDI H/F ÓLAFSFIRÐI KAUPUM FLESTAR SJÁVARAFURÐIR SÍLDARVERKUN FRAMLEIÐUM SALTFISK OG SKREIÐ 96-62273 Heimasími 96-62139 VÍKINGUR 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.