Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Blaðsíða 8
Takmarkanir fiskveida Þorskveiðar Eins og oft vill verða þegar takmarka þarf sókn í hinaýmsu fiskistofna sýnist sitt hverjum. Á ráðstefnu Verkfrœðingafélags íslands sem haldin var 2.—3. mars sl. hélt forstjóri Hafrannsóknastofn- unar, Jón Jónsson, erindi um afrakstursgetu botn- lœgra fiska á íslandsmiðum. í erindi sínu bendir Jón á, að á árunum 1950 til 1977 var þorskaflinn minnstur árið 1967, en þá var hann 345 þús. lestir, en mestur árið 1954, 548 þús. lestir. Óheillaþróun hefur átt sér stað á þessu tímabili þarsem hinn kynþroska hluti stofnsins hefur minnkað úr 700 þús. lestum í 200 þús. lestir. A ugljóst er öllum þeim, sem vilja líta á staðreyndir, að við þessari óheillaþróun verður að stemma stigu. Allir fiskimenn og verkendur sjá þörfina fyrir skynsamlegar ákvarðanir varðandi veiðarnar, en um aðferðir hafa menn ekki orðið sammála og hefur komið upp leiðinda hrepparígur um málið. Síðustu tvœr vertíðir hafa miklar takmarkanir verið á veiðum hrygningarfisks og hafa sjómenn almennt sætt sig við þœr og tel ég að þeir séu samþykkir þeim sökum þess að mikið er í húfi fyrir framtíð fiskveið- anna og þá um leið atvinnu þeirra. Það hefur sýnt sig að sjómenn eru tilbúnir til samstarfs um fiskverndun þegar þörf er á henni og vil ég í því sambandi minna á afstöðu sjómanna til síldveiðibannsins á sínum tíma. Vandinn virðist vera sá að fá hin ólíku sjónarmið samrœmd. í því efni tel ég að Sjávarútvegsráðuneytið eigi að hafa forystu, t.d. með því að halda ráðstefnur þar sem menn geta leitt fram rök fyrir stefnu sinni í fiskveiði- málum. Eitt af því sem kemur illa við sjómenn og útvegs- menn eru hinarsíðbúnu ákvarðanir um veiðiheimildir. Til dœmis gaf Sjávarútvegsráðuneytið út reglugerð um takmarkanir áþorskveiðum 27. mars 1979, og átti hún að gilda um veiðiheimildir í apríl og einnig um hvenær netaveiði skyldi lokið. Svona skyndiráðstaf- anir eru ekki til þess fallnar að auðvelda samskipti ráðuneytisins við fiskimenn. Síldveiðar Um síldveiðarnar hefur verið góð samvinna eins og fyrr er getið. Nú hefur verið lögð fram tillaga um að sama magn og áður, 35 þús. tonn, sé œskilegur há- marksafli. Ekki eru menn sammála um þetta nú. Margir álíta að nauðsynlegt sé að aukning eigi sér stað smátt og 8 smátt, meðal annars til þess að tryggja sölu afurðanna og hafa menn í því sambandi látið sér detta í hug að auka veiðina að þessu sinni um 5 þús. tonn og jafnvel miða veiðileyfin við annað en tonnatölu. Oft hafa verið nokkrir erfiðleikar í sölu síldar, og ef litið er tilþess þá getur verið óþœgilegt að auka veiðarnar skyndilega, en betra að auka þœr hóflega á hverju ári. Karfaveiðar: Fiskifræðingar hafa hvatt til þess að karfaveiðar yrðu auknar og telja þeir að ekki hafi verið sótt í þann stofn eins og þol hans leyfir. En hér eru menn ekki sammála fiskifrœðingunum og telja sem rök gegn þessari kenningu að á þeim svœðum þar sem karfi hefur verið veiddur án takmarkana hefur stofninn ekki jafnað sig á ný, svo ekki mun um stór nýtileg svæði að ræða hvað karfaveiðarnar varðar. Óhjákvœmilega kemur inn í málið að mikill hluti frystihúsa er ekki í stakk búinn að vinna karfann, en auðvitað yrði sá vandi leystur ef veruleg veiði vœri. Ef fiskimenn hafa rétt fyrir sér um karfann mun hann nú veiðast á tiltölulega litlu svæði, en aðgát þarf auðvitað að hafa á karfaveiðum svo honum verðiekki útrýmt. Skarkolaveiðar: Ekki er vafi á því að skarkolaveiðar má stunda með góðum árangri ef rétt er að staðið og telja fiskifrœð- ingar að skarkolinn sé einn þeirra fiskistofna, sem þoli aukna veiði. En sá hœngur hefur verið um árabil á þessum veiðum að sala hefur verið treg og verðið of lágt fyrir sjómenn og útvegsmenn. Nauðsynlegt er að veiðarnar fari fram á þeim tíma árs þegar fiskurinn er bestur. Þá er jafnvel hœgt að flytja hann á breskan markað ferskan. Það skiptir vart máli hvort skarkolinn er veiddur í troll eða dragnót, þvi ekki er veitt með þessum veiðarfœrum nema á tiltölulega afmörkuðum svœðum og er ekki vandi fyrir fiskifrœðinga og fiskimenn að koma sér saman um hverþau skuli vera. Nú sýnist mér að sá vandinn sé mestur hvort hœgt sé að nýta hina ýmsu stofna til fulls, ekki síst þá sem vannýttir eru nú í dag. En forsenda góðrar nýtingar er sú að málsaðilar geti með góðum vilja komið sér saman um hvernig sókn- inni skuli hagað, þannig að hvort tveggja fari saman, hámarksnýting afurðanna hverju sinni og verndun þeirra stofna sem í hœttu kunna að vera. Ingólfur Stefánsson VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.