Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Page 55

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Page 55
og tæknimenntaöa ráögjafa Tæknimiðstöðvar- innar ef þú vilt þiggja góö ráó í sambandi við eftirfarandi: Eitt samtal við ráðgjafa okkar, án skuldbindingar, getur sparað þér störfé hvort sem um er að ræða vangaveltur um nýkaup eða vandamál við endurnýjun eða viðgerö á þvi sem fyrir er. VERSLUN - RÁÐGJÖF- VIÐGERÐARÞJÓNUSTA TÆKNIMIÐSTÖÐIN HF Smiójuveg 66. 200 Kópavogi S:(91)-T6600 norðanverðri eyjunni var vatns- uppspretta. Staður skipsins var á 24° 22” S og 128° 20”. V. Hval- veiðin hafði gengið vel, en þó voru nokkur lýsisföt ennþá tóm og þannig ekki fullfermi. Hann bjóst við að það tæki tvo mánuði að fá það, sem á vantaði og að hann gæti sett stefnuna heim til San Francisco. Báturinn, sem sendur var að landi, kom aftur, ekki að- eins með vatnsbirgðir, heldur einnig með höfuðkúpubrotinn mann, rænulítinn en þó með lífs- marki. Á skilríkjum, sem fundust í vösum hans, varð ráðið að nafn hans var George Blakely, frá Port Bragg. Hann var svo aðframkom- inn að lífi hans varð ekki bjargað, en í óráðshjali hans mátti greina orðin. — Trevers morð. — Annað ekki. Líkið var sveipað segldúk og sökkt í Kyrrahafið, en við komuna til Frisco, gaf Burns skipstjóri ná- kvæma skýrslu um atburðinn. Yfirvöldin höfðu fengið skýrslu Trevers, senda frá Suva og var Trevers kallaður til yfirheyrslu, en málinu síðan frestað um sinn. Ekkert varð úr réttarhöldum útaf þessu máli, því það leystist á annan hátt. Barkskipið Komo kom aldrei heim úr næstu ferð. Þegar ekkert hafði spurst um skipið í lengri tíma, var það talið ahfa sokkið, eða farist á Kyrra- hafi, „með mann og mús“. Blöðin í San Francisco birtu átakanlegar greinar um þennan sorglega at- burð og þess var getið að um borð hefðu verið útgerðarmaðurinn Adam og kona hans Fredericia. Skipstjórinn var Elías Trevers, einn virðulegasti skipstjóri út- gerðarinnar. Þá þótti það og sér- staklega athyglisvert, að báðir eigendur þessa trausta og þekkta fyrirtækis, höfðu orðið fyrir svo illum örlögum, með svo válegum hætti. 55

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.