Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1979, Blaðsíða 59
asti sérfræðingur í „ferðabilun“,
ef nota má þetta orð.
Múrarinn
Einn sjúklinga prófessors Bro-
kop, 49 ára gamall múrari, sem
annars var mesti friðsemdarmað-
ur, réðst á ameríska eldri konu,
og ástæðan var sjúklegur ein-
manaleiki, sem olli skyndilegum
geðtruflunum.
Sama var að segja um 44 ára
gamlan kaupsýslumann, sem
eyddi leynilega nokkrum dögum á
ferðalagi með annarri konu en
eiginkonunni.
Hann týndist í nokkra daga í
fjöllum. Sjúklega hræðsla við
njósnara sem fylgdust með hegð-
an hans, urðu honum ofviða.
Oft skjóta ný, óþekkt vandamál
upp kollinum í samlífi hjóna,
þegar komið er í iðjuleysið frá
hinum skipulagða starfstíma og
athvarfi heimilanna, en flest til-
fellin eru þó ekki svo alvarlegs
eðlis, að hætta geti stafað af, en
röksemdalaus reiði út í ferða-
skrifstofur, fararstjóra og hótelin
getur þó blossað upp, þótt allt fari
fram með þeim hætti, sem flestir
ættu að geta sætt sig við.
Skoðanir prófessorsins
hljóta viðurkenningu
Prófessor Heinz Brokop mun
vera upphafsmaður að rannsókn á
afbrigðilegri hegðan ferðamanna.
í fyrstu létu menn sér fátt um
finnast, þótt ljóst sé að í jafn fjöl-
mennri og þýðingarmikilli at-
vinnugrein sem ferðaiðnaðurinn
er, sé rétt að vita eitt og annað um
manneskjuna og ferðalögin, því
það eru þó ferðamennirnir, sem
borga brúsann.
Nýverið barst prófessor Brokop
mikilvægur stuðningur, þegar
Þýzka læknisfræðistofnunin lét
frá sér fara grein um að sálræn,
sjúkleg vandamál gætu komið
upp í sólarlandaferðum hjá fólki,
sem annars væri heilbrigt. Ferða-
lögin geta valdið sálrænum sveifl-
um, sem geta orðið sjúklegar.
Læknisfræðistofnunin hefur þó
ekki ráðlagt Þjóðverjum að hættá
að ferðast, en um það bil 15 mill-
jónir þýskra ferðamanna ferðuð-
ust til útlanda á síðasta ári, en
stofnunin ráðleggur þeim sem
stressast í ferðalögum, að taka sér
frí tvisvar á ári, með sex mánaða
millibili, en láta sér ekki nægja eitt
frí á ári, þótt það sé lengra.
Þetta kemur einnig heim við
kenningar Austurríkismannsins,
sem er andvígur erfiðum helgar-
ferðum, sem hann telur að geti
verið hættulegar geðheilsu ein-
stöku manna. Ferðamaðurinn
sækir þá enga tilbreytingu, eða
hvíld frá önn dagsins, heldur eyk-
ur aðeins á taugaspennuna, sem
oft er ærin fyrir.
SCANIA
BÁTAVÉLAR
LÉTTBYGGÐ — FYRIRFERÐARLITIL
AFKASTAMIKIL DIESELVÉL
VIÐURKENND FYRIR GANGÖRYGGI
SCANIA DS114 357 hestöfl við 1900 sn/mín.
við stöðugt þungt álag.
SCANIA bátavélar 128—357 hestöfl.
SCANIA rafstöðvar 95—250 KVA.
SCANIA SPARAR ALLT NEMA AFLIÐ
ÍSARN HF.
REYKJANESBRAUT 12 — SÍMl 20720
VÍKINGUR
59