Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Page 17
yngstu meðal okkar, sem hafa
komist hingað inn pappíralausir
til að kneifa ölið og skoða konur,
halda jafnvel niðri í sér andanum.
Trukkararnir spenna greipar á
maga sér. Hér ku sjást mikið fyrir
prísinn á einum bjór. Hér eiga
eftir að sjást margar stúlkur, mis-
jafnlega mittisgrannar, með mis-
jafnlega stór brjóst og mislanga
fótleggi, og það er allt gott og
blessað, annað eins veit maður nú,
en það sem betra er er það að þær
eru af ýmsum kynstofnum, sumar
austurlenskar í húð og hár að sjá,
aðrar þeldökkar eins og þær sem
landeigendur skemmtu sér við á
plantekrunum í suðurríkjunum
hér áður fyrr, og enn aðrar fha-
beinshvítar eins og við sem sitjum
hér inni og fáum mikið að sjá fyrir
lítið. Hér er sem sagt vöruúrvalið
mikið, lagerinn fjölbreyttur.
VÍKINGUR
Ég verð að segja það, að sú jap-
anska hefði örugglega fengið 10 á
landsprófi í leikfimi á minni tíð.
Hún virtist vera sérfræðingur í
bakfettum. Trukkaramir sendu
frá sér merki viðurkenningar í
formi langs góls þegar milli fóta
hennar mátti sjá hárið bera við
rasskinnarnar. Og þar sem þetta
var fyrsta nakta konan í kvöld og
leiðin yfir Atlantshafið löng og
kannske tilbreytingarlítil og
hjóladynurinn vart þagnaður í
eyrum trukkaranna slógu hjörtu
manna örar við þessa sýn, og þeir
sem voru yngstir meðal okkar
fengu sér annan sopa af bjórnum
og gutu snöggt augunum til næsta
manns þegar lítið bar á. En því var
þannig varið með þessa sýningu,
að hápunkturinn leið hjá eftir
fyrstu mínútumar, spennan dvínr
aði eins og ef í reyfara væri sagt
hver morðinginn væri strax á
þriðju síðu — restin verður ekki
meira en billegur pappír með
bókstöfum á. Þegar sú japanska
hafði rétt sig við, skreið hún uppá
dívan sem lá þar nærri og gerði
svefnherbergisæfingar og mér
datt i hug að það væri eins gott að
enginn væri þar með henni til að
njóta hennar: hann hefði verið
fyrir, hvergi passað í kramið.
En tveimur bjórum og fimm
stúlkum síðar, í þann mund sem
við Selfyssingar erum famir að
ókyrrast í sætunum og hugsa á
brott, stígur fram á gólfið stúlka
nokkur snoppufríð í meira lagi, og
svo fagurlega limuð að hún hlýtur
að eiga sér fjögurra lita framtíð á
síðum Hustler blaðsins, ef rétt er
höndlað. Samt mundi ég ekki vilja
vita af henni í eldhúsinu heima
hjá mér á daginn. Þessi stúlka
17