Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Page 21
þegar hin auðvelda blasti við?
Þannig hafði hann komið sér upp
álitlegum hópi gleðikvenna, sem
unnu á afmörkuðu svæði við
Washington götu, og þar að auki
var sívaxandi eftirspurn eftir þeim
vamingi öðrum, sem hann hafði
að bjóða. Fannst mér um stund,
eftir að hafa hlýtt á mál hans, að
væri hann kominn í föt frá Brooks
bræðrum og sestur á stól í skrif stof u
í Manhattan, þá gæti hann verið
dæmigerður verðbréfasali. Og
hann benti okkur á mann sem sat í
gullnum kadilak hinum megin við
götuna, með digra vindil í kjaftin-
um og gullhring á hverjum fingri
og horði á nóttina líða hjá og
sagði: Svona verð ég einhvern
tíma: Þessi á búllur og háhýsi og
stjórnar vímuhring og á hálfa
Washington götu og hefur það
gott. Og þar sem við stöndum
dagmaðurinn og ég í þessu fyrir-
heitna landi kunningja okkar með
Paradís í augsýn hinumegin göt-
unnar kemur til okkar aftur Sel-
fyssingurinn ungi og spræki, bros-
leitur eftir nýafstaðna för og við
förum allir inn í leigubíl, sem bíð-
ur þama við rautt ljós, ég í miðj-
una aftrí, þeir við hurðimar.
En í þann mund sem götuvitinn
grænkar eru afturhurðir bílsins
rifnar upp og félagar mínir tveir
vita ekki fyrr til en tvær stúlkur eru
komnar upp í fangið á þeim og
teknar til við líkamlegar þreifingar
og dylst engum að hér skuli gengið
hreint til verks. Verjum við nú sem
við mest megum líf okkar og limi,
en bílstjórinn situr rólegur í fram-
sætinu við grænt ljósið og horfir á
aðfarimar í speglinum. En sem
betur fer hættir þessi aðför jafn-
skyndilega og hún hafði hafist:
áður en varði voru þær á braut, við
sátum eftir ringlaðir í sætum okk-
ar, og bílstjórinn ók rólegur af stað.
Á leiðinni ræddum við þessa und-
arlegu uppákomu, og fengum við
henni engin skynsamleg svör. Það
var ekki fyrr en daginn eftir er
VÍKINGUR
dagmaður hugðist grípa tii buddu
sinnar að gátan varð ráðin. Hans
aurar urðu eftir í hverfinu þar sem
aldrei er sofið, í Washington götu
handan við Paradís.
Og þegar við segjum skilið við
taxann og göngum eftir kajanum
að Selfossi, sjáum við hvar varð-
maðurinn svarti sefur undir stýri á
bíl sínum. Hann rumskar ekki
þegar við förurn hjá, heldur hvílir
höfuðið á hakkpúðanum og hrýt-
ur. Nóttin er rök og dimm. Ein-
hversstaðar í myrkrinu núa engi-
sprettur saman fótunum, lágvært
suð og svæfandi. I svörtu skipinu
mala ljósavélamar á afláts. Loftið
í káetunni minni er þungt. Hitinn
er þrúgandi. Ég leggst í koju, slekk
ljósið. Eftir svo ærslafulla nótt
sakna ég konu minnar, innileika
hennar og ástar. Um leið og ég
sofna veit ég hvemig farmönnum
hlýtur oft að líða. En hafið er stórt.
Á morgun höldum við til annarrar
hafnar.
Guðbrandur Gíslason.
Utan úr
Stöðugt verið
að dýpka Súezskurðinn.
Texaco Irland 290.000 tonn
dw. fór nýlega í gegnum Súez-
skurðinn og hafði 145.00 tonna
farm innanborðs. Talið er, að
ca. 330—340.000 tonn dw. skip
geti farið um skurðinn í „ball-
est“, og ca. 200.000 tonna skip
með farm. Með þessu sparast
sigling fyrir mjög stóran hluta
af tankskipum heimsins, er
nemur þúsundum sjómílna í
hverri ferð miðað við að sigla
suður fyrir Góðravonarhöfða.
Afkastamikil höfn.
Hong Kong er 3 stærsta
gámaflutningahöfn hemsins, og
sem dæmi um umsvifin þar má
geta þess, að á meðaltali fer þar
skip úr eða í höfn á 3 mínútna
fresti allan sólarhringinn, allt
árið.
JÁt
Sjómannaflutningar SAS
Síðan 1960 hefur SAS-Flug-
félagið flutt ca. 250.00 sjómenn
að og frá skipum sínum, á sér-
stökum „sjómannaafslætti“.
Af kaupskipaflota heimsins,
71.000 skipum, eru 715 skip
stærri en 200.000 tonn dw.
Skipstjórinn
framdi sjálfsmorð.
Skipstjórinn á bandaríska,
gastankskipinu „Taurus“
125.000 m% að stærð, framdi
sjálfsmorð skömmu eftir að
skipið strandaði við Tobata í
Japan. Áður hafði hann skrifað
skýrslu, og tók á sig alla
ábyrgðina af strandinu. Ekkert
kom fyrir áhöfnina, og skömmu
síðar var skipið dregið á flot.
Skipstjórinn var sextugur að
aldri.
21