Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Side 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Side 27
Undirrituðum var skemmt þegar hann rakst á þessa smá- sögu sína í gömlum blöðum ekkl alls fyrir löngu. Sumarið 1962 fór ég mínu fyrstu ferð á togara, og er ekki ótrúlegt, að sú ferð hafi orðið kveikjan að þessu sögukorni, þótt atburðir þeir, sem þar er skýrt frá eigi sér enga stoð í persónulegri reynslu höfundar. Eins og títt er um pennaglaða unga menn — ég var aðeins sautján ára — þá var ég gjam á að leita upp hið harmsögulega og veita því inn í sögur mínar hvað sem það kostaði. Þessi tilheiging til að lýsa vofeilegum atburðum sem virðast standa utan alls samhengis í tilverunni einokar stundum hugi drengja á vissu aldursskeiði og er kennd við unggæðislega rómantík. En hvað sem því líður grunar mig, að margir muni kannast við þær kenndir sem bjuggu í brjósti sögumanns á stíminu heim, og því læt ég söguna fljóta með nú í þessu blaði, óbreytta. Hvítir mávar birtust áður í Fálkanum haustið 1962. Ritstj. wmm&m m mm Það var rok niður við höfnina og skipin veltust kæruleysislega upp við hafnarbakkann. Þau rykktu í festarnar eins og þau vildu til hafs. Löndun úr togara stóð yfir og enda þótt kvöld væri komið var enn unnið við höfnina. Stór ljós- kastari var festur upp við staur á miðri bryggjunni og hann varpaði skini yfir skipið sem verið var að landa upp úr og iðnar öldurnar á höfninni. Þær voru hvítfextar og riðluðust skipulagslaust upp að máttarstólpum bryggjunnar, tog- uðu í þanggróðurinn sem greri þar á þverbjálkunum, eins og þær vildu draga hann með sér og láta hann hverfa. Mávarnir voru á vakki meðfram höfninni; þeir streittust móti rokinu, flugu og virtust þó vera kyrrir og létu sig síðan líða þöndum vængjum ská- hallt undan vindinum meðfram bryggjunni í áttina að togaranum. Þeir litlu gráðugir og hræddir í kringum sig eftir æti, og þeir frökkustu hættu sér yfir miðskipið þar sem löndunin var í fullum gangi. Og þeir héldu áfram að fljúga í tilgangsleysi sínu, lóna í fjörunni svo hvítir og einsamlir í myrkri næturinnar. Á ytri gangreininni við Skúla- götu var mannvera á gangi og gekk til togarabryggjunnar. Þetta var kvenmaður í ljósri kápu sem vindurinn reif í og þyrlaði til og frá. Hann lyfti kápunni og smaug inn fyrir og fór inn á stúlkuna, þrengdi sér ofan í hálsmálið og ofan á brjóstin. Hann þaut upp undir pilsið og þandi það út svo það varð eins og poki og gældi við lífið og setti að henni hroll. Hún sveipaði að sér kápunni enn fastar og beitti sér í vindinn. Stundum stansaði hún og horfði áhyggjufull út á hafið. En þar var ekkert að sjá, aðeins nokkrir mávar á flakki. En utar; utan við ljósmálið í myrkrinu úti á hafinu var togari á leið til lands. Allir skipverjar voru ofanþilja og nokkrir voru að norpa í stefninu við að losa kaðlana sem áttu að tengja skipið við járnhring- ina í landi. Menn höfðu haft fata- skipti og rakað sig og þvegið sér og VÍKINGUR 27

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.