Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Blaðsíða 57
Skólaslit Stýrimanna-
skólans í Reykjavik
Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík var slitið í 90. sinn föstudaginn
22. maí. Að þessu sinni voru
óvenju margir gestir viðstaddir
skólaslit. í upphafi minntist
skólastjóri, Jónas Sigurðsson,
þeirra sjómanna er látist höfðu á
skólaárinu. Að því loknu gaf hann
yfirlit yfir starfsemi skólans á
skólaárinu.
Alls voru í skólanum 150 nem-
endur þegar flestir voru. Af þeim
voru 3 stúlkur. Á ísafirði starfaði
1. stigs deild í tengslum við Iðn-
skólann þar og sóttu hana 8 nem-
endur. Utan venjulegrar stunda-
skrár voru haldin nokkur nám-
skeið við skólann og auk þess
fengu nemendur skólans að fylgj-
ast með aðgerðum á slysadeild
Borgarspítalans. Ennfremur fóru
nemendur 2. og 3. stigs æfinga-
ferðir með varðskipum ríkisins.
Prófi 1. stigs luku 56 nemendur
auk 6 á ísafirði. Prófi 2. stigs luku
55 og 3. stigs 34.
Efstur á prófi 3. stigs var Páll
Ægir Pétursson, 9.87 og hlaut
hann verðlaunabikar Eimskipafél-
ags íslands, farmannabikarinn.
Efstur á prófi 2. stigs var Þórður
Örn Karlsson, 9.71. Hlaut hann
verðlaunabikar Öldunnar, Öldu-
bikarinn. Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna veitti verð-
laun fyrir hæstu einkunn í sigl-
ingafræði, fiskimanni á 2. stigi, og
hlaut þau Þórður Öm Karlsson,
klukku með loftvog.
Bókaverðlaun úr Verðlauna- og
styrktarsjóði Páls Halldórssonar
skólastjóra hlutu eftirtaldir nem-
endur. Á 3. stigi: Ágúst A. Ragn-
arsson, Jón Elíasson og Páll Ægir
Pétursson. Á 2. stigi: Daði Jó-
hannesson, Gunnar Júlíusson,
Ólafur Haraldsson, Pétur M. Pét-
ursson, Sigurður Ólafsson, Þórður
Öm Karlsson og Þorsteinn Jafets-
son. Danska sendiráðið veitti
bókaverðlaun fyrir góða frammi-
stöðu í dönsku þeim Ágústi A.
Ragnarssyni, Daða Jóhannessyni
og Gunnari Júlíussyni. Auk þess
veitti skólinn Guðmundi Bárðar-
syni, formanni skólafélagsins,
bókaverðlaun fyrir störf í þágu
nemenda og skólans.
Eftir afhendingu skírteina og
verðlauna ávarpaði skólastjóri
nemendur og lagði áherslu á þá
ábyrgð og skyldur sem skipstjórn-
arstarfi fylgja. Auk þess minntist
hann 90 ára starfsferilsskólans,
brautryðjendanna, skólastjóra
skólans og kennara og þeirra
tímamóta sem stofnun skólans
markaði í þjóðlífinu.
Ráðuneytisstjóri Menntamála-
ráðuneytisins, Birgir Thorlacius,
flutti ávarp, minntist 90 ára af-
mælis skólans, flutti kveðjur
menntamálaráðherra og bók að
gjöf til Jónasar Sigurðssonar
skólastjóra sem nú er að láta af
skólastjórn sökum aldurs. Þakkaði
hann Jónasi ágætt starf í þágu
skólans. Jónas svaraði og þakkaði
ágætt samstarf við ráðuneytið á
liðnum árum og sérstaklega þátt
ráðuneytisstjóra við að efla tækja-
kost skólans.
Frú Þóra Havsteen færði skól-
anum uppstoppaðan fálka sem
sonur hennar, Júlíus B. Havsteen,
hafði átt. Júlíus lauk farmanna-
prófi frá skólanum 1968 en lést 18.
maí 1977, þá 34 ára.
Ari Jónsson hafði orð fyrir 40
57
VÍKINGUR