Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Page 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Page 20
með köllum til okkar dagmanns- ins þar sem við stöndum á horn- inu, og er hinum unga Selfyssingi sýnu meira niðri fyrir nú en áður og finnst áríðandi að hann fái leiðréttingu mála sinna áður en það verði um seinan, en dísin, sem hefði getað með dugnaði sín- um leyst af hólmi allar mjaltavélar á tilraunabúinu í Laugardælum, kvartar mjög undan því hverslags stritla þessi norðurbúi sé, og stimpast þau svo um stund að ruslatunnan leikurá reiðiskjálfi en við dagmaður hlæjum dátt. Kemur þó þar, að Selfyssingur- inn ungi slítur sig frá náðarhönd stúlkunnar og kemur til okkar illa svikinn, en hún á eftir, málóð mjög, sýnilega hneyksluð á því framferði viðskiptavinarins að vilja ekki glúpna strax við snertinu hennar. Og hvort sem réði nú, eðli hennar æst, eða meðfæddur heið- arleiki góðrar viðskiptakonu, þá varð úr, að hún tók félaga okkar aftur í teymi, nú yfir götuna og þar inná stundarhótel þar sem þau luku sínum viðskiptum, tvö í einu rúmi eins og lætur best, og er ég ekki til frásagnar um það. En þar sem við dagmaðurinn stöndum tveir eftir á háhýsishorn- inu með bokkuna á milli okkar, svífur að okkur grannur og há- vaxinn svertingi með skrauthúfu og annar í humátt á eftir honum og tekur okkur tali. Með því að ég er jafnan tortrygginn á annarlegum stundum og stöðum í útlandinu bregð ég hendinni strax í þann vasa sem geymir veskið og ákveð að hvíla hana þar á meðan á þessarri návist stóð. Dagmaður hefur ef- laust hugsað sumt svipað og ég og því rétti hann aðeins úr sér, letilega að því er virtist, og strauk hendi um hár sér, svo viðmælendum okkar duldist ekki að hér var sterkur maður á ferð: það vantaði bara tijágrein og þá væri hann orð- inn Tarsan. En þetta reyndust vera hinir friðsömustu menn í við- skiptaerindum eins og fleiri þetta kvöld: Þeir buðu hold, og einnig allskonar vímugjafa. Og þegar við vildum ekkert þiggja, héldu þeir áfram að spjalla við okkur um heima og geima, og forvitnast um ísland eins og útlendingum er lagið, og varð úr hið ánægjuleg- asta rabb, þar sem við fræddumst m.a. um þá ótrúlegu möguleika til auðsöfnunar, sem virtust blasa við þessum piltum. Var hér kominn gamall kunningi okkar hinn ameríski draumur með þykkri húð af mótmælendasiðgæði utaná, sem sagt sá, að með því að beita sjálfan sig og aðra vissum aga, þá mætti ávaxta pund sitt geysivel við tiltekna iðju, nefnilega þá að versla með eiturlyf og líkama hins veikara kyns. Var, ef illa gekk að hafa hömlur á kvenfólkinu, þjóð- ráð að gefa þeim sprautu eða kæruleysispillu til að halda fjærri þeim óþægilegum hugsunum, sem kynnu að skjóta upp kollinum af og til, og þótti hinum mjúkmælta kunningja okkar það öllu skárri aðferð en að beita líkamlegu of- beldi: hví að velja erfiðu aðferðina 20 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.