Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Síða 31
Björgunarlaun landhelgis-
gæslumanna minni en
á öörum skipum flotans
í sjómannablaðinu Víkingi, 3ja
tbl. 1981, er birt viðtal við skip-
stjórann á bv. Svalbaki, Halldór
Hallgrímsson. í þessu viðtali
kemur Halldór inn á störf Land-
helgisgæslu íslands (LHG ísl) og
segir þá stofnun hafa uppi
óskammfeilar björgunarkröfur við
minnsta viðvik, sem manni skilst
að mótist af óseðjandi peninga-
hungri varðskipsmanna og láti
þeir lönd og leið allar skyldur um
leit týndra sjófarenda ef þeir eygja
von í björgunarlaun. Reynslu
sinni til sönnunar nefnir Halldór
sjóslys er varð út af Vestfjörðum
um kvöldið 22. eða aðfaranótt 23.
desember 1966.
Þar sem í þessu viðtali er svo
freklega hallað réttu máli að með
ólíkindum er, þá finnst mér nauð-
syn bera til að birta þær stað-
reyndir sem fyrir liggja í leiðar-
bókum varðskipanna frá þessum
tíma. En auk þess felst í fullyrð-
ingu Halldórs og blaðamannsins,
sem gerir einhliða frásögn Hall-
dórs að sinni, rætin tilraun til að
ófrægja aldinn skipstjórnarmann
sem ég þekkti aldrei af öðru en
fyllstu trúmennsku í starfi. Þar
sem ég hef ekki trú á að þessi öld-
ungur hirði um, úr þessu, hvort
störf hans sem að baki liggja verði
metin eða ekki, þá vil ég að gefnu
tilefni fræða þá félaga um það, að
hann lagði á sig skipshöfn sína
þann vanda að bjarga sjómönnum
úr bráðri lífshættu, ekki einu sinni
heldur oft, og þótti SVFI ástæða til
að veita honum viðurkenningu
fyrir.
Um kvöldið þegar áðurnefnt
sjóslys varð, var ekkert varðskip á
miðunum undan Vestfjörðum,
sem er afar sjaldgæft. Aftur á móti
var eitt af minni varðskipunum
við eftirlitsstörf á Breiðafirði fyrri
hluta 22. des., en þar sem undir-
búningur jólahalds var hafinn hélt
þetta varðskip áleiðis til Reykja-
víkur síðdegis sama dag. Það hefur
verið viðhöfð sú regla af stjórn-
anda LHG að helmingur skipa-
stólsins fengi að halda jólahátíð í
landi en hinn hlutinn hefur fengið
áramótin í staðinn.
Kl. 17,30 22. desember kallaði
Ísafjarðarradíó og sagði breska
togarann Boston Wellvale strand-
aðan í Arnarnesi við Skutulsfjörð.
Varðskipið á Breiðafirði svaraði
ísafirði og kvaðst vera-langt undan
til að aðstoða svo kæmi að gagni.
Kl. 14,00 á Þorláksmessu lagði
eitt af stóru varðskipunum úr
Reykjavíkurhöfn og hélt rakleiðis
til leitar að mb. Svani. Samdæg-
urs, 23. des. kl. 19,30 var varð-
skipið komið á miðin og hóf leit
þar ásamt mörgum skipum. Var
leitinni haldið áfram óslitið Þor-
láksmessudag og aðfaranótt að-
fangadags. Leitarskýrsla varð-
skipsins greinir eftirfarandi: Kl.
12,30, þ.e. á aðfangadag, „til-
kynnti breski togarinn
ARMANDA að hann hefði séð
gúmmíbjörgunarbát á hvolfi 21.0
sml. frá Blakknesi og 18.8 sml. frá
Kópanesi. Var tafarlaust haldið á
fullri ferð þangað. Voru á leiðinni
athuguð öll reköld er sáust og
einnig svipast um eftir tilvísun
flugvéla. Kl. 14,00 fann mb.
DOFRI gúmmíbát eftir tilvísun
LHG-flugvélarinnar TF-SIF og
var þá ekkert í honum. Kl. 14,30
var komið að mb. Dofra og tekinn
VÍKINGUR
31