Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Page 42
Bréf frá
Mexíkóflóanum
Gunnar Guömundsson, skipstjóri skrifar
OREGON II. Mexíkóflóanum
12. maí 1981
Kæru félagar á íslandi.
Þegar ég var staddur á íslandi í
júní síðastliðið sumar, þurfti ég að
hafa samband við skrifstofu Vík-
ingsins í sambandi við áskrift
mína af blaðinu, því það fæ ég
alltaf sent, þó komin séu 21 ár
síðan ég fór að heiman. Ritstjóri
blaðsins orðaði við mig hvort ég
mundi vilja senda þeim línu í
blaðið, ég sagði að það væri sjálf-
sagt, ég skyldi athuga það, en af-
sakaði auðvitað um leið að mér
væri nú margt betur gefið en að
skrifa í blöð og einhvern veginn er
það svo, að verst er að byrja.
Ég hefi nokkrum sinnum sest
niður og ætlað að láta verða af því
að senda nokkrar línur, en bara
hreinlega gefist upp áður en ég gat
byrjað, því mér finnst ég ekkert
hafa til að skrifa um, því dagarnir
líða hver af öðrum í tilbreytinga-
leysi. En stundum hef ég orðið var
við þegar ég hef komið heim
til íslands í frí, að sumum finnst
einhver ævintýraljómi yfir þeim
mönnum sem farið hafa að heim-
an og eru að flækjast út um allan
heim. Það get ég sagt ykkur í
hreinskilni, og ég ætti að vita hvað
ég er að tala um eftir að.vera bú-
inn að vera að heiman í bráðum
22 ár, að það verður eins hvers-
dagslegt eins og að fá sér göngutúr
í Austurstrætinu. Því eins og mál-
tækið segir: Fjarlægðin gerir
fjöllin blá og mennina mikla.
Jæja, ég ætla þá að reyna að
komast að efninu og segja ykkur
svolítið frá NOAA og tildrögum
þess að ég fór skipstjóri til þeirra.
NOAA þýðir National Oceanic
and Atmospheric Administration,
mundi þýða á íslensku Haf- og
geimrannsóknir Bandaríkjanna.
Þetta er ein fámemiasta stofnun
ríkisins, um 15.000 manna starfs-
lið og 26 skip. í samanburði við
strandgæsluna, sem hefur á að
skipa 45.000 manns er þetta ekki
stór hópur.
Jæja, þegar ég var skipstjóri á
500 tonna skuttogara í Boston í
fyrrahaust, var hjá mér stýrimaður
sem hafði verið á NOAA skipi, að
vísu ekki hér niðurfrá, heldur í
Woods Hole í Massachussetts,
sem er ekki nema rúmlega hálf-
tíma akstur að heiman þar sem ég
bý. Þá hafði ég ekki einu sinni
heyrt um þetta skip hér í Missis-
1 sippi og vissi reyndar lítið um
NOAA. Svo varð það úr að ég fór
á skrifstofuna, fyllti út umsóknar-
eyðublað, en bjóst ekkert við að
heyra frá þeim meira, en eftir rúm
30 ár við fiskveiðar hélt ég að tími
væri kominn að breyta til og eftir
15 ár á togurunum heima,
krabbaveiðum í Alaska og 20 ár á
trollskaki hér á austurströndinni,
VÍKINGUR