Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Page 63

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Page 63
Frá Velferðarráði „Alþjóðleg íþróttanefnd Sjó- manna“ skipuleggur íþróttir ár- lega um allan heim. — Forseti þessara nefndar hefur boðist til þess að skipuleggja hér íþrótta- keppni á þessum vettfangi. Á fundi velferðarráðs Sjó- manna sem haldinn var 22/5 1981 var samþykkt að kanna mögu- leikanna á því að koma á íþrótta- viku á næsta vori sem gæti hafist seinni hluta maímánaðar, og notið samstarfs við „The International Sport Committee for Seafarers“. Að því tilefni hefur verið sent eftirfarandi bréf í öll íslensk far- skip um þessa fyrirhuguðu keppni. Til skipstjóra á farskipum Föstudaginn 22.5. 1981 var samþykkt á fundi Velferðarráðs sjómanna að koma eftirfarandi til skila.— Þar sem aðrar Norðurlanda- þjóðir hafa haft forgöngu um íþróttavikur og annað er varðar tómstundaiðju sjómanna hefur Velferðarráðið áætlað að koma á íþróttaviku á næsta ári (1982) sem gæti hafist seinni hluta maímán- aðar. Ef þörf krefði mun lengri tími en ein vika verða tekin svo að sem flest skip geti tekið þátt í íþrótta- keppninni (Fijálsar íþróttir, knattspyrna og fl.). Okkur hefur boðist að fá heim- sókn af forseta „The Intemational Sport Committee for Seefarers“ til þess að skipuleggja þessa íþrótta- keppni fyrir íslenska sjómenn og erlenda sem kunna að vera staddir í höfn á þeim tíma.— Æskilegt væri að fá álit skips- hafna á þessari fyrirhuguðu íþróttakeppni og jafnframt að þátttaka sé tilkynnt ef menn geta gert upp hug sinn um þátttöku strax. — Þetta má geta skriflega eða í síma 11234 (2—6 e.h.). Var einokunin lögð niður árið 1787? Flest höfum við heyrt það. En því miður er út- flutningsverslun laridsmanna enn í dag að nokkru leyti á sama stigi og á tímum Hörmangarafélagsins alræmda. Nú er það ekki Hólmfastur á Brunastöðum, sem er dæmdur fyrir að selja þrjár löngur, tíu ýsur og tvö sundmagabönd til Keflavíkurkaupmannsins í stað þess að selja ,,hinum rétta" kaupmanni í Hafnarfirði. Nýtískulegar aðferðir Nú er reynt að beita nýtískulegum aðferðum: Framleiðendur sektaðir fyrir að selja öðrum en ,,hinum stóru“. Reynt að hóta viðskiptaaðilum innan lands og utan. Skipafélög þvinguð til að taka ekki vörur til flutnings. Reynt að beita stjórnmála- menn þrýstingi og þvingunum og reynt að beita áhrifum í gegnum fjármálakerfið. Frystihúsamenn og aðrir framleiðendur sjávaraf- urða! Við bjóðum yður að taka til sölumeðferðar framleiðsluvörur yðar án nokkurra skuldbindandi ,,einokunarákvæða“. Við getum reyndar ekki „millifært" frá einni tegund eða pakkningu til annarrar né skilað útsöluverði erlendis án þess að draga frá eðlilegan flutnings- og sölukostnað, né möndlað með ,,uppbætur“. (Þær greiðast strax hjá okkur). En við bjóðum yður að taka þátt í frjálsum viðskiptum að hætti siðaðra manna og að byggja upp aðhald fyrir ,,hina stóru". Munið: Flestir framleiðendur sjávarafurða í heiminum standa utan einokunarsamtaka. ,/SLBVSKA 3& UTFLUTN/NGS- MIÐSTÖÐINHF. EIRIKSGATA 19* PO.BOX 764 • 121 REYKJAVÍK SÍMAR :(91) 21296 & (91)16260 VÍKINGUR 63

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.