Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Qupperneq 36
"ELEKTRA
neta- og línuspil
er fáanlegt í þremur
stæróum,
600,1200 og
2200 kg.
ELEKTRA
grásleppublökkin.
Með henni er hægt að fá
línubúnað, dekkfót og fl.
Elektra dekkspilið er
fáanlegt í 3 mismunandi
gerðum.
ELEKTRA
færavinduna
er hægt að fá í tveimur
stærðum.
Maxi eða midi 12 eða
24 volt.
Einnig vökvadrifna
maxi.
FLJÓT OG GÓÐ VIÐGERÐAR- OG
VARAHLUTAÞJÓNUSTA
ELEKTRAVERKSTÆÐIÐ
LYNGÁSI 11, GARÐABÆ, SÍMI 53396 og 53696, PÓSTHÓLF 124
36
„Ég ætla bara að taka myndir,
þarf engan hlut í grindinni.“
„Hinkraðu aðeins, við skulum
sjá til.“
Ég stóð eins og fáviti; skipti um
fót, kinkaði kolli og þorði ekki að
segja neitt. Nokkru seinna kom
annar með vömb. Þeir ræddust við
og ég heyrði sagt:
„Islander.“
Mér var bent að koma um borð.
„Góðan daginn,“ sagði ég og
kinkaði kolli.
Klukkan þijú lögðum við af
stað, vorum fimm um borð og
þessi með pírðu augun var skip-
stjóri. Við sigldum í halarófu út úr
hafnarmynninu. Skammt fyrir ut-
an sást eyja með háu fjalli. Við
stefndum til hafs en allir hinir
bátamir beygðu. Mér var sagt að
grindin væri hinumegin við eyj-
una og skipstjórinn vildi stytta sér
leið. Ládauður sjór var en dimmt
yfir.
„Haldið þið að þetta séu margar
grindur?“ spurði ég og var kominn
með skrifblokk á loft.
Við sátum ofan í lúkar og var
verið að hita kaffi á sprittprímus.
„Nei, ekki stór grind. Kannski
hundrað stykki. Oft er þaér 500—
700, mest verið ellefu hundruð.“
„Hvemig stendur á því að það
kemur sjaldan grind í Þórshöfn)“
„Það kemur sjaldan stór grind í
Þórshöfn, ég veit ekki af hverju
það er. En hér eru svo margir bátar
að hver partur verður lítill. í litlu
þorpunum út á landi er stærri
hlutur,“ sagði breiðleitur strákur.
„Hvemig er skipt?“
„Hver bátur fær hlut og hver
maður um borð, einnig þeir sem
eru í landi og taka á móti.“
„Er allt etið, tungan og lifrin?“
„Já, hausinn er bara skotinn af.“
Skipstjórinn var á þönum við að
skrúfa krana og lesa af mælum.
Einn lá fram í stafni og horfði í
kíkinn, en báturinn var opinn
fremst. Annar athugaði bitið á
VÍKINGUR