Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Page 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1981, Page 40
Fullir karlar opna hval og stela nýra, það rauk úr innyflunum. ekki,“ sagði hann með þýðri röddu. Ég kinkaði kolli. „Oft brotna bátar og komið hefur fyrir að menn hafa stungið hvorn annan í æsingnum. Stund- um spennandi að sjá, sérstaklega ef það eru margar grindur.“ Nú skildi ég hvað skipstjórinn á mahoný bátnum hafði óttast. „Áður fyrr var þetta lifibrauð Færeyingana og þá voru bara árabátar. Læknar segja að mikil næring sé í spikinu og vissulega er þetta mikil björg í bú.“ Ég minntist þess að utan á öðru hvoru húsi hékk kjöt, orðið dökkt og sólbakað. Og að húsabaki, tunnur með saltpækli. Hann fræddi mig einnig á því að ekki mætti skera grindina þama í fjörunni því hætta væri á tauga- veiki úr ánni. Hvíti báturinn var kominn upp að landi og grindin spriklaði í gijótinu. Karlinn var kominn úr bátnum og reyndi að leita færis að koma hníf á hana. Hvalurinn var ósjálfbjarga og sporðurinn sveifl- aðist upp og niður. Loks tók skepnan sér hvíld, þá skar hann aftan við öndunaropið og blóð spýttist út. Grindin tók heljar- UNILON: Fjölhæfar plötupakkningar sem þola m.a.: vatn, gufu- þrýsting, olíur, kolvetni, flestar sýrur, lútarefni, hita upp í 510°C. NEBAR hefur fjölbreytta motkunarmöguleika vegna sveigjan- leika og hitaþols, frá — 30°C. - + 150°C. NEBAR þolir: kæli- og frystivökva, bensín, smurolíur, vatn, loft og uppleysandi efni. G. J. Fossberg, vélaverzlun Ltd. Skúlagötu 63, Reykjavík Sími18560 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.