Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Page 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Page 37
„Hryllmgsmyndir vinsæl- astar og þessar djörfu” — spjallaö við Björgvin Ólafsson, eiganda Yídeovals Á örfáum árum hefur mikil breyting átt sér stað, hérlendis í almcnnri notkun myndbanda. Nú er ekki nóg með að fólk eignist litsjónvarpstæki, heldur kaupir það myndsegulband og ákveður sjálft hvað það vill horfa á. Af þessum sökum hafa sprottið upp myndbandaleigur út um allt land og í Reykjavík einni eru líklega um tuttugu slíkar starfræktar. Tilkoma myndsegulbandanna hefur breytt miklu fyrir líf sjó- manna um borð í skipum og munu slík tæki til í flestum togurum landsmanna, hluta af bátaflotanum og flestum farskipum. Segir það sig sjálft að þar sem nær ógerlegt er að ná íslenska sjónvarpinu úti á sjó, eru myndsegulböndin kærkomin afþreying fyrir sjómenn. En hvaða efni býðst mönnum að horfa á? Eru möguleikar myndbandavæðingarinnar nýttir til fulls? Um það eru inenn enn ósammála. Björgvin Ólafsson, eigandi Video-Vals, Hverfisgötu 49 Reykjavík. Allir vilja fá einhvern hrylling eða klám, fræðsluþættir og íslenskt efni er ekki vinsælt. Leigir mynbönd í skipin. Video-Val Hverfisgötu 49 Reykjavík, hefur gert mikið af því að leigja myndbönd um borð í skipin og hefur gert sérstakan samning við innflytjendur band- anna því í reglum þeirra er bannað að leigja bönd á vinnustaði sem og aðra opinbera staði. Björgvin Ólafsson, eigandi Video-Vals, hefur verið sjómaður undanfarin tíu ár og þekkir því vel lífið til sjós. Hann heldur því fram að skipin séu heimili, jafn- framt því að vera vinnustaður og því sé sjálfsagt að leigja þangað spólur. Björgvin semur við skipin um fasta greiðslu fyrir túrinn, óháð því hvað hann er langur. Leigir hann hverja spólu á 150 krónur í túr en í landi kostar 50 krónur að fá spólu leigða í sólarhring. Myndirnar sem Björgvin leigir í skipin hefur hann verið með í út- leigu í landi í mánuð áður. Ekki er honum heimilt að leigja sjómönn- um myndbönd með íslenskum texta vegna reglna fyrirtækisins sem setur inn texta og myndir sem hann fær leigðar frá Norðurlönd- um af Norrænni myndbandaleigu sem sér um dreifingu um öll Norðurlönd og er með myndir í frekar háum gæðaflokki, má hann heldur ekki leigja í skipin. — Hvers konar myndir eru vinsælastar um borð, Björgvin? — Djarfar myndir og hryll- ingsmyndir eru lang vinsælastar. Menn vilja fá eitthvað spennandi. Ég hef reynt að vera með annars VÍKINGUR 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.