Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Síða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Síða 41
ástæðan fyrir þessari lækkun sé einfaldlega offramboð af netum á mörkuðunum og því keppist fram- leiðendur um að undirbjóða hver annan. Hins vegar eru menn sam- mála um að verðið fari ekki neðar en nú. Framleiðendur geta ekki boðið netin á lægra verði. Bresk sjávar- útvegssýning á Loftleiöum í febrúar Bresk sjávarútvegssýning verður haldin að Hótel Loftleiðum dagana 15. og 16. febrúar næst komandi. Þar munu fjplmörg bresk fyrirtæki kynna framleiðslu sína, bæði verða veiðarfæri kynnt og eins ýmiskonar tæknibúnaður og vélar. Þetta er í annað sinn, sem bresk fyrirtæki sameinast með sjávarút- vegssýningu á íslandi. Sú fyrri var haldin á Hótel Loftleiðum í febrúar 1978. Þotti forráðamönnum bresku fyrirtækjanna sýningin takast það vel þá, að þeir ákváðu að halda aðra sýningu á (slandi í vetur. Landhelgis- gæslan fær 85 millj. króna í fjárlögum fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að Landhelgisgæslan fái samtals 85.474 þús. kr., sem er hækkun um 30.067 þús. kr. frá yfir- standandi ári. (fjárlögunum er gert ráð fyrir að fjögur varðskip verði í rekstri, sam- tals í 31 mánuð, þ.e. Ægir og Týr í 10 mánuði hvort skip, Þór í 6 mán- uði og Óðinn í 5 mánuði. Hjá flug- gæslu er gert ráð fyrir rekstri þriggja flugvéla, þ.e. einum Fokker (TF-SÝN) og tveimur þyrlum. Gert er ráð fyrir að laun hjá Gæslunni hækki um 12.670 þús. kr. og verði 35.568 þús. kr. önnur rekstrargjöld hækka um 10.617 þús. kr. eða 50,0%, og verða 31.824 þús. kr. Segir í greinargerð með fjárlagafrumvarpinu, að þá hafi sérstaklega verið tekið tillit til örra verðhækkana á olíu. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Víkingur hefur aflað sér, þá finnst starfsmönnum Gæslunnar að olíulióurinn hefði mátt hækka meira. Allt þetta ár, hefur Land- helgisgæslan átt í hinum mestu vandræðum með að kaupa olíu á skipin og oft hafa þau farið frá Reykjavík með 1 til 2 sólarhringa olíuforða um borð. Segja Gæslu- menn að ef varðskipin þyrftu skyndilega að fara til leitar eða veita sérstaka aðstoð á annan hátt, þá lægi Ijóst fyrir að fyrst þyrftu þau að fara inn til hafnar til þess að freista þess að fá meiri olíu. Olía til eins sólarhrings dugar skammt og í raun og veru er stórhættulegt að gera varðskipin út, svo til olíulaus. Fyrsti báturinn með svartoiíuvél Vélsmiðja Seyðisfjarðar á Seyð- isfirði er nú með í smíðum 190 tonna stálbát fyrir Ritu h.f. á Vopnafirði. Báturinn, sem á að verða tilbúinn í mars/apríl á næsta ári er mjög svipaður Otto Wathne NS, nema hvaö hann er bæði lengri og breiðari. Það sem vekur kannski hvað mesta athygli viö þennan bát er að hann erfyrsti bátursem íslendingar láta smíða, sem er með sérstakri svartolíuvél. Aðalvélin er af gerð- inni Wartsilaa, 800 hestöfl, sér- staklega smíðuð til brennslu á svartolíu. Fram til þessa hefur svartolíu- notkun eingöngu verið um borð í skuttogurunum, nokkrum nóta- skipum og sumum flutningaskip- anna. Nú virðist hins vegar ætla að verða sú þróun að svartolíu- brennsla verði einnig tekin upp um borð í minni bátum. Eigendur báts- ins, sem nú er í smíðum á Seyðis- firði telja sig munu spara hundruð þúsunda króna, á ári hverju með því að láta vélina brenna svartolíu í stað gasolíu. Hagnaður í Krossanesi Það eru ekki allar fiskimjölsverk- smiðjur landsmanna, sem geta státað af því að hafa skilað stór- hagnaði á síðastliðnu ári. Reikn- ingar Krossanesverksmiðjunnar í Eyjafirði sýna að rekstur hennar hefur gengið mjög vel. Hagnaður varð á rekstrinum sem nam 6.7 milljónum króna. Þrátt fyrir aó nú sé engin loðnubræösla og verð á af- urðum mjög lágt á heimsmarkaði, er gert ráð fyrir að verksmiðjan muni bera sig á þessu ári. Fékk 2500 tonn af loðnu í einu kasti — Þetta er ævintýri. Hugsið ykkur að við skyldum hafa náð 2500 tonnum af loðnu í einu kasti. Sjálfir tókum við 720 tonn, 400 til 500 tonn sluppu út úr nótinni og þrír bátar fengu samtals 1770 tonn úr nótinni hjá okkur, þá hentum við að lokum 400 til 500 tonnum. Það var mikið meira í nótinni í upphafi, því mikið rann yfir korkateininn þegar við vorum að draga. Þannig komst skipstjórinn á norska loðnubátnum Flömann að orði þegar þeir á Flö- mann fengu eitt hið stærsta loðnu- kast sem um getur, en báturinn var þá á veiðum í Barentshafi. Loðnuveiðar Norðmanna í Bar- entshafi gengu vel í sumar og segja norskir sjómenn að meira hafi verið þar af loðnu en oft áður. Bátarnir fengu oft stór köst, þótt fáir næðu köstum í líkingu við það sem Flö- mann náði. Stærsta loðnukast, sem vitað er til að norskur bátur hafi áður náð fékkst í fyrra en þá fékk bátur 2100 tonn í einu kasti. VÍKINGUR 41

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.