Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Qupperneq 62
Búið að opna kassann og talning að hefjast. Ingólfur frá Vélstjórafélaginu telur og
Ingólfur Stcfánsson frá F.F.S.Í. skráir.
Atkvæðagreiðsla
um samninga
F.F.S.Í.
Atkvæðagreiðsla um samninga
F.F.S.Í. sem birtust í síðasta tölu-
blaði Víkings, fór fram dagana 12.
ágúst til 10. september. Atkvæði
greiddu 135.
Þann 10. september voru at-
kvæði talin og féllu þau þannig:
Vélstjórar: 49 já, 17 nei, 2 auðir.
Stýrimenn: 45 já, 18 nei.
Loftskeytamenn: 5 já, 1 auður.
Ógildir seðlar voru þrír.
Samtals samþykktu því 94
samningana en 35 voru á móti.
Auðir og ógildir voru 6.
E.Þ.
Nýr
Jón
Þórðarson
til
Patreks-
fjarðar
Þessa dagana er væntan-
legur til landsins nýr 200
tonna fiskibátur, sem fær
væntanlega nafnið Jón Þórð-
arson BA. Jón Þóröarson er
keyptur frá Noregi og kemur í
stað eldri Jóns Þórðarsonar,
sem væntanlega verður seld-
ur í brotajárn, en þaö skip var
smíðað árið 1958 í A-Þýzka-
landi og er einn af tappatog-
urunum svonefndu.
Eigandi Jóns Þórðarsonar
er Héðinn Jónsson.
Talningamenn við störf sín.Trá vinstri Ingólfur Stefánsson, framkvæmdastjóri F.F.S.I.,
Ingólfur Ingólfsson formaður Vélstjórafélags íslands, Guðlaugur Gíslason, starfsmaður
Stýrimannafélags íslands, ísak J. Ólafsson starfsmaður Vélstjórafélagsins, Bogi Þórð-
arson, frá Félagi íslenskra loftskeytamanna og Baldur Hermannsson, formaður Stýri-
mannafélagsins.
62
VÍKINGUR