Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Qupperneq 21
Versnandi hráefnisgæði
valda mér áhyggjum
H.Þ.: Það er tvennt sem ég vil
minnast á nú í lokin. Ég hef áður
sagt að versnandi hráefnisgæði
undanfarinna ára hafi valdið mér
áhyggjum og ég hef líka sagt að
fræðsluhlutverkið væri vanrækt.
Það þarf að bæta hráefnið og þeir
aðilar sem um það eiga að sjá
þurfa að gefa útvinnslureglu fyrir
hvem aðila sem kemur nærri
fiskinum, frá því að hann kemur
úr sjónum, þar til að hann er
kominn í hendur kaupenda. Það
eru alltof margir veikir hlekkir í
þessari keðju um þessar mundir.
Það er oft svo að maður verður
var við algjört þekkingarleysi og
það í einföldustu atriðum, sem þó
geta haft mikil áhrif eftir á.
í öðru lagi vil ég segja að ég hef
nú unnið í gæðaeftirliti í röskan
áratug og mér hefur alltaf reynst
það best, að vilji menn fá bætur á
einhverjum hlut þá verði að skýra
frá því hvernig eigi að vinna hann,
síðan að fylgja honum eftir.
J.B.: Það er nú búið að nefna
flest atriði sem máli skipta. Það er
þó eitt atriði, sem ég vil ítreka að
lokum. Það er að gæðamat eða
gæðaflokkun þarf að eiga sér stað
á öllum stigum vinnsluferilsins.
Það er eitt sem gleymist oft í því
sambandi að flokkunin sjálf er
ekki aðeins liður í verðlagningar-
aðgerð til þess að ákveða hvað
menn fái greitt fyrir vöruna. Ekki
er síður mikilvægt að flokkunin er
í sjálfu sér leið til vöruvöndunar.
Með því að hafa flokkunarað-
ferðir góðar og nákvæmar, þá er
það liður í vöruþróun.
Geymir
I
\ Kvaröi
Flothylki
txj
Ryðfrltt stálhylki
Flangsi
32
BOLAM
HfEÐANÆUGLÖS
meö segukvoróa
BOLAM eru vökvahæðamæliglös jafnt til notkunar í
vélarúmum skipa sem í iðnfyrirtækjum til eftirlits með
hverskonar efnisgeymum.
þau eru óháð þrýstingi í efnisgeymi. Hægt er að fá
þau fyrir 50 kg/cm2 eða meira og í allt að 7 metra lengdum.
Einnig má tengja við þau viðvörunarkerfi fyrir há- og
lágmark.
Notkunarsvið
til mælingar á:
Vatn, Ammoniak,
Diesel-, Svart- og
smurolíu. Eter
freon og hvers
konar sýrur.
Kostir:
Auðveld I uppsetn-
ingu.
Ekkert viðhald.
Auðveld álestrar
jafnvel í fjarlægð.
Viðurkennd af:
Siglingarmálstofnun
ríkisins
Lloyds Register of
Shipping
The Norwegian Veritas
Bureau Veritas
Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum okkar
G.J. FOSSBERG
VÉLAVERZLUN HF.
Skúlagötu 63 - Reykjavik
Simi 18560
bo|am
21
VÍKINGUR