Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1982, Qupperneq 63
Fundarmenn á fundi Norrænna skipstjórnarmanna. íslcnsku fulltrúarnir eru 1., 3. og 5.
frá vinstri.
Frá Stýrimannafélaginu:
Dagana 2. og 3. september sl. var
haldinn, í fyrsta sinn hér á landi,
fundur Norrænna skipstjómar-
manna, Nordisk Navigatörs
Kongress. Fundur sem þessi er
haldinn tvisvar á ári, til skiptis hjá
aðildarfélögunum en aðilar að
sambandinu eru öll félög skip-
stjómarmanna á farskipum á
Norðurlöndum að undanskildum
Færeyjum og Grænlandi. Af hálfu
Stýrimannafélags íslands sátu
fundinn þeir Baldur Halldórsson,
formaður, Páll Hermannsson,
varaformaður og Guðlaugur
Gíslason, starfsmaður félagsins.
Að sögn Guðlaugs var margt
rætt á fundinum sem snertir hags-
munamál skipstjórnarmanna á
farskipum. Má þar nefna fjölda í
áhöfn en nú er mjög víða til-
hneiging til að fækka mönnum um
borð samfara öðrum samdrætti
hjá útgerðarfélögum. Sá sam-
dráttur kemur einnig fram í því að
útgerðarfélög taka upp erlendan
fána, hagkvæmnisfána svokallað-
ann. Við það fást lægri skattar og
ódýrari mannskapur. Eru lönd
eins og Panama, Grikkland og
Singapore, vinsæl í þessu efni. Að
vonum eru skipstjórnarmenn ekki
hrifnir af slíku og vilja hamla gegn
þessari þróun. Einnig voru örygg-
ismál og menntunarmál mikið
rædd.
Fundir þessir afgreiða ekki
samþykktir, þeir eru til samráðg-
unar fyrir forystumenn skip-
stjórnarfélaganna svo auðveldara
sé fyrir þá að fylgjast með hver hjá
öðrum.
Tólf erlendir gestir sátu fundinn
og létu þeir vel af dvöl sinni á Is-
landi. Þeir skoðuðu Gullfoss,
Geysi og Þingvelli en hápunktur
ferðarinnar fannst þeim að fara til
Vestmannaeyja.
Næsti fundur forystumanna
skipstjórnarmanna verður haldinn
í Oslo, 17.-18. mars á næsta ári.
E.Þ.
Útbúum lyfjakistur fyrir skip
og báta.
Eigum ávallt tilbúin lyfja-
skrín fyrir vinnustaði, bif-
reiðar og heimili.
INGÓLFS APÓTEK
Hafnarstræti 5. Sími 29300
Lesendur 67 ára og eldri
Eins og frá hefur verið skýrt í blaðinu var ákveðið að veita
ellilífeyrisþegum helmings afslátt á áskrift blaðsins. Ekki hefur
sú framkvæmd gengið sem skyldi því á áskriftarlistum okkar
kemur aldur áskrifenda ekki fram svo gíróseðlar með fullu verði
voru sendir út til allra sem ekki hafa sérstaklega tilkynnt aldur
sinn. Viljum við hvetja þá sem rétt hafa á þessum afslætti að
tilkynna það á skrifstofuna að Borgartúni 18, sími 15653 eða
29933.
VÍKINGUR
63