Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1985, Side 75

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1985, Side 75
Skólaslit Fyrir hönd 35 ára fiski- manna frá 1950 talaði Bjarni Gislason fulltrúi. Sigurbjörn Árnason skipstjóri talaði fyrir hönd 30 ára nemenda, Kári Valvesson stýrimaður talaði fyrir 20 ára fiskimenn. Skúli Möller stórkaupmaður og fyrr- verandi kennari við skólann flutti kveðju 20 ára farmanna og Sigurjón Simonarson talaði fyrir hönd 10 ára nemenda. Kennari kvaddur ’l lok skólaslitanna kvaddi skólastjóri sérstaklega Helga J. Halldórsson cand. mag. en hann lætur nú af kennslu sem fastur kennari eftir 40 ára starf við Stýrimanaskólann. Helgi J. Halldórsson hefur kennt við Stýrimannaskólann i Reykjavík samfleytt siðan 1945, þegar skólinn hóf starfsemi i Sjómannaskóla- húsinu. Skólastjóri afhenti Helga listaverkabók og konu hans Guöbjörgu Guöbjörns- dóttur blómvönd sem vott þakklætis frá skólanum fyrir hin góöu störf Helga viö skól- ann og þeirra hjóna í félagslifi memenda. Um störf Helga J. Halldórssonar sagöi skóla- stjóri: „Um tugi ára hefur hann af velvild og festu, en þó meö sérstakri gamansemi og glettni, haldið fánanum hátt i þeirri grein sem skiptir öllu máli i sérhverjum skóla á ís- landi, en það er kennsla í móðurmálinu, islenskri tungu, sem gerir okkur aö einni þjóö“. Helgi og kona hans voru hyllt af viöstöddum meö innilegu og löngu lófaklappi Að lokum kvaddi skólastjóri útskrifaöa nemendur sérstak- lega meö stuttu ávarpi, en aö því loknu var gestum og út- skrifuðum nemendum boðið upp á kaffi og veitingar, sem félagskonur Kvenfélags Öld- unnar sáu um að venju af al- kunnum myndarskap. Þetta er kölluð sjómennska Ég og við kennararnir biðj- um ykkur alls hins besta og þökkum ykkur samveruna á liðnum vetri og vetrum. Eins og ég gat um i upphafi sýnir reynslan okkur og kaldur veruleikinn, að margar hættur geta fylgt starfi íslenskra sjó- manna. Minnist ætið ábyrgðar ykkar á skipi og mönnum. Ver- ið tillitssamir unglingum og kennið þeim að verða góðir sjómenn. Gætið vel að öllu á okkar stormasama hafsvæði, sjóbúið vandlega fyrir hverja sjóferð, skálkíð lúgur og lokið öllu vatnsþétt. Teflið aldrei i tvisýnu með hlaðin skip eöa illaásigkominn. Það sagði mér nýlega einn reyndasti skipstjóri i íslenska togaraflotanum, að fyrir ekki mörgum árum hefði hann stuttu eftir að hann kom fyrir Látrabjarg á skipi sinu, 500 tonna skuttogara, á leið fyrir Núpa í norðaustan stormi og stjórsjó, lent í svo mikilli yfir- ísingu, að eftir rúmlega klukkutíma siglingu sneri hann viðogsuðurfyrirBjargið i lygnari sjó og heitari. Þar voru skipverjar marga klukku- tima að berja af ísinn. Það er þetta, sem kölluð er sjó- mennska og fyrirhyggja. Það er vit og ákveðni að snúa frá hættunni áður en í óefni er komið. Þetta var þó enginn veifiskati heldur aflaklóin Guðjón Kristjánsson skip- stjóri á Páli Pálssyni og núver- andi forseti FFS’l, sem allir viö- staddirþekkja. Að lokum þetta: Fylgi ykkur ætíð Guð og gæfan i öllum ykkarferðum. Megið þið ávallt koma skipi ykkar og áhöfn heilu i höfn. Ég segi Stýri- mannaskólanum i Reykjavik slitið í 94. skipti frá stofnun hans. Helgi J. Halldórsson hefur kennt viö Stýri- mannaskólann í 40 ár, en lætur nú af störfum. Skólastjóri færði honum gjöf aö skilnaöi. Fylgi ykkurætíö Guö og gæfan í öllumykkarferö- um. Megiö þiö ávaltkoma skipi ykkarog áhöfn heilu íhöfn. Víkingur 75

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.