Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Blaðsíða 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Blaðsíða 37
Oryggisventill Væri „Self Call“ tækið fullkomin lausn? „Ekki alveg en það munar ekki miklu. Öryggismála- nefnd Alþingis hefur komið þessari hugmynd á framfæri viö Póst og sima sem ræður þessu máli, en þar er einhver fyrirstaða vegna þess að menn þar tala um „Digital" tæki sem sé fullkomnara en þvi miöur eru ein 5 ár i að þau tæki koma í notkun“ segir Eysteinn. En hvað með tölvuvæð- ingu til skráningar og til að sjá hvaða bátar hafa tilkynnt sig og hverjir ekki, þó ekki væri til annars en að létta álaginu af þeim sem er á vakt? Þaö mál er i athugun, en þeir félagar eru ekkert alltof bjartsýnir. Gerð var tilraun með tölvu í samvinnu við Háskólann en sú tölva sem reynd var réð ekki við verk- efniö. Hefur sennilega veriö of litil. En þeir telja að það sé hægt að tölvuvæða tilkynn- ingaskylduna. Það er bara hætt við að svo vandaða tölvu þurfi til að peninga- skortur stöövi þaö mál. Kom- ið hefur fram hugmynd og það fullyrt að hægt sé aö framkvæma hana, aö koma upp tölvukerfi þannig að Is- landskortið sé á skjánum og með þvi að ýta á hnapp sé hægt að sjá hvar viðkomandi bátur er stadduK Þeir segjast kannas't við þetta mál en þaö sé mjög langt i land að hægt sé aö framkvæma hugmynd- ina. En ef og þegar þaö verð- ur hægt eru öll vandamál varðandi tilkynningaskylduna leyst. Þeir taka lika fram, að þótt of margir sýni kæruleysi, varöandi tilkynningaskyld- una, þá sé mikill meirihluti skipstjóra til fyrirmyndar i þessu máli. Samstarfið við strandstöðvarnar sé einnig eins gott og hægt er að hugsa sér, menn þar séu bæði samviskusamir og hjálplegir meö allt sem til þeirra er leitað varðandi til- kynningaskylduna. „Sem gamall sjómaður langar mig að biðja skip- stjórnarmenn að láta af þvi kæruleysi að sinna ekki til- kynningaskyldunni. Við sem hér störfum göngum ekki að þessu sem venjulegu verki. Hugarangur okkar er oft óskaplegt, þegar við hættum á kvöldvakt og næturvaktin tekur við í slæmu veðri og bátur sem við vitum að er á sjó hefur ekki tilkynnt sig. Maður sofnar ekki alltaf strax og heim er komið þegar þannig stendur á, hvað þá aðstandendur sem biða milli vonar og ótta", segir Guðjón og Eysteinn tekur undir það. Þannig sé líðan þeirra allra sem við þetta starfa undir þessum kringumstæðum. - S.dór. Eysteinn Guðlaugsson við spjaldskrána, en all- ar tilkynningar eru færðar inn á spjald við- komandiskips. Guðjón Halldórsson svarar fyrirspurn i sím- ann, en mjög mikið er um að ástvinir sjó- manna og utgerðar- menn hringi til tilkynn- ingaskyldunnar til að spyrja um skipin. VÍKINGUR 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.