Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Qupperneq 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Qupperneq 45
Utan úr hcimi Alltaf á sunnudögum, gæti verið kjörorö Mærsk skipafélagsins. Tacoma er höfn no 1 fyrir Mærsk línuskipin á Kyrrahafinu er koma frá Austurlöndum. Gámunum er hlaðið beint á járnbrautavagna er flytja þá til ákvörðunarstaöa hvert sem er um Bandaríkin. Á myndinni má sjá 1.8 kílómetra lengd af gámum í 2 hæðum á leið frá skipi. Þetta er aðeins hluti farmsins, því lengd gámanna í farminum er um 9500 metrar væri þeim raðað enda við enda, eða 4.750 metrar í 2 hæöum. Á þessum hraðskreiðu skipum tekur ferðin yfir Kyrrahafið einungis 7—8 sólarhringa. Frá Tacoma bætast svo við 1 —3 sólar- hringar eftir því hvert gámarnir fara i Bandaríkjunum. Seglskip, byggð til farþegaflutninga: Windstar Sail Crusies heit- ir nýstofnað skipafélag. Eig- endur eru Norðmennirnir Karl G. Andersen og Stolt Nielsen fjölskyldan. Þeir hafa samið um byggingu tveggja segl- skipa. Stærð: L=439’ fet, B=51 ’ fet, djúpr. 13’06” fet. Aöalvélar 3 diesel-rafknúnar. Áætlaður siglingarhraöi 10,5 sm + 3—4 sm í viðbót vegna seglanna (háð vindi). Segl- búnaðurinn verður Bermuda- rigg, dakron/nælon segldúk- ur, öllum seglabúnaði verður stjórnað-með tölvum. Verði hliðarhali yfir 6° tekur tölvan til sinna ráöa, og riggar til seglum (fellir segl ef með þarf), svo fyllsta öryggis „glasa” og farþega sé gætt. Áhöfnin verður ca. 70—75 menn, og farþegafjöldi 150 í tveggja manna klefum. Hver klefi hefur baðklefa, litasjón- varp, videó, útvarp, ásamt ómissandi kæliskáp. Að sjálf- sögðu, er skemmtisalur, mat- salur, barir o.fl. fyrir alla. Sundlaug, leikfimisalur, ásamt vídeósafni, rakara- stofu, verslunum og að ógleymdu spilaviti. Nú hefur víst enginn lengur bók undir koddanum. Útgerðarmenn telja, að þessi skip höfði til yngri kynslóðarinnar, og ætla að sigla til hinna smærri eyja Karabiska hafsins, og stunda þar sjóskíðaiþróttir, bretta- siglingar (surf) ásamt köfun- um. Einnig verðu rkomið við á stærri höfnum. Hver ferð á að taka 7 sólarhringa. Verði mun stillt í hóf. Hvort skip kostar $ 32,5 millj. og afhendist hið fyrra seint á árinu 1986, og hið síðara í ársbyrjun 1987. Lyftiorka 1200 tonn: ítalir byggja nú flotkrana, til nota við „off-shore‘‘-vinnu. Lyftigeta verður 1200 tonn. Særými kranaskipsins verður 70.000 tonn. Verð $ 265 mill- jónir. Norsk yfirvöld auðvelda útgerðar- mönnum fánaskipti: 300 norsk skip eru nú skrá- sett erlendis, og vex fjöldi þeirra hrööum skrefum. Norsk yfirvöld auðvelda útgerðar- mönnum þessi fánaskipti, undir þvi yfirskini að það auö- veldi þeim samkeppni í sigl- ingunum. Kaupskip undir norskum fána i erlendum sigl- ingum eru nú 754 að tölu. Viðskiptajöf nuður er Norðmönnum mjög hagstæður: Viðskiptajöfnuður Norö- manna við útlönd var þeim hagstæður s.l. ár um 40,3 milljarða n.kr. (184,6 milljarða ísl. kr.). Þar af er olia og gas (78,5 milljaröar af 147,8 millj- örðum n.kr.). Þar við bætist að kaupskipaflotinn var með brúttótekjur 32 milljarða n.kr. (146,56 milljarða ísl. kr.). Nettó gaf kaupskipaflotinn þeim 13,7 milljarða n.kr. (62,74 milljarða isl. kr.). Seglbúnaöurinn veröur Bermudarigg, dakron/nyion segldúkur. Öllum seglbúnaöi veröur stjórnaö meö tölvum. VÍKINGUR 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.