Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Page 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Page 47
Vélhermirí Vélskólann Síðastliöin 10 ár hafa verið aö þróast hermar (símúla- torar) fyrirkennslu í vélstjóra- skólum. Allmörg ár eru siðan herm- ar komu fram á sjónarsviöið til þjálfunar flugmanna og skipstjórnarmanna i siglinga- fræði, m.a. hinir svokölluðu Radar-samlíkjar. Vélskóli íslands hefur fylgst með þróun þessara mála. Á Noröurlöndum var fyrsti vélhermirinn tekinn i notkun i Þrándheimi i Noregi fyrirnokkrum árum. Það er fyrst nú aö notkun þeirra er farin að aukast, en þeir hafa verið i stöðugri þróun eins og allur annar tölvubúnaður. Nýjasta gerð þeirra eru hinir svokölluðu lit- grafísku hermar. Þeirfalla vel inn i eldri vélbúnað i vélasöl- um vélstjóraskólanna. Meö þessum vélhermum má kalla fram, á litskjá, öll kerfi véla- rúms og fá fram öll mæligildi sem máli skipta. Ef viðvörun kemur fram vegna þess aö eitthvað hefur fariö úrskeiðis kemur viðkomandi gildi fram i öörum lit og blikkar. Fjarstýr- ingar eru framkvæmdar þannig að viökomandi kerfi er kallað fram á skjáinn og færanleg ör látin þenda á þann þátt er stilla þarf. Megintilgangur vélhermis er aö þjálfa vélstjóra í að bregð- ast við bilunum í vélum og tækjum og við neyðarástandi sem gæti orðið á skipi úti á rúmsjó. Vélhermir er gerður af breytilegum fjölda eininga sem raðaö er saman i sam- ræmi við væntanlega notkun. Þeir henta sérstaklega vel við kennslu byrjenda og jafn- framt eru þeir hagkvæmir við menntun þeirra sem eru að Ijúka vélfræðinámi, svo og við endurmenntun, rannsóknirog bilanaleit. Vegna frétta i fjölmiölum frá Litskjáir HÉR FER TEIKNI- VINNSLAN FRAM bæjarstjórn Akureyrar vil ég taka fram eftirfarandi: í mörg ár var Vélskóli is- lands meö sjálfstæöa deild á Akureyri, sem seinna varð deild i Iðnskólanum. Þegar Verkmenntaskólinn var stofnaður varð þessi deild að vélstjórnarbraut i honum. Ég óska Verkmenntaskólanum á Akureyri til hamingju með hina veglegu byggingu og góðu og stóru sali til verklegr- ar kennslu og vona að þeir komi sér upp góðum vélasal fyrir vélstjórnarkennslu og þar verði m.a. vélarúmsherm- ir. Það hefur komiö fram i fréttum frá Akureyri að einn vélhermir mundi duga fyrir allt landið, en eins og fram kemur i greininni hér á undan er slíkt tæki liöur i hinni daglegu kennslu og veröur því að vera til í viðkomandi skóla. Til Akureyrar hefur veriö pantaður vélarúmshermir, en til Vélskóla Íslands litgrafísk- ur vélhermir, sem að okkar mati fellur vel inn i þann vél- búnað sem við höfum fyrir i vélasölum skólans. Vakin skal athygli á því að þegar eru litgrafiskir skjáir komnir i stjórnklefa vélarúms skipa, orkuvera og verk- smiðja til notkunar fyrir vakthafandi vélstjóra til að fylgjast með ástandi véla og tækja. Tölvustýrðir „hermar", ásamt litskjám og stjórnborðum. Fréttatilkynning frá Vélskóla íslands Andrés Guðjónsson, skólameistari. VÍKINGUR 47

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.