Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Síða 58

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1986, Síða 58
Tónlist , ■4y,i'v x Hc r oú nú Andrea Jónsdóttir Þrjár konur Þær eiga svo sem ekkert sameiginlegt þær Joni Mitchell, Kate Bush og Sade annað en að vera konur, sem gefa út hljómplötur, og kom sin hver frá þeim á siöasta ári. Kate var fyrst þeirra með Hounds of Love, síðan Sade með Promise og loks Joni með Dog eat Dog. Reyndar eiga þessar konur það lika sameiginlegt að plötur þeirra eru sérstakar i öllu því krað- aki sem út er gefið af hljóm- plötum: Sade fyrir sina fág- uðu, fallegu og notalegu ró- legheitatónlist, sem margan manninn hefur seitt upp úr skónum að minnsta kosti; Kate Bush fyrir ævintýraleg efnistök sín og tónlist í stil sem hún er búin að liggja yfir árum saman i stúdiói; Joni Mitchell fyrir ótrúlega full- komnun á öllum sviðum — hljóðfæraleik, tón- og texta- smið — og þar i ofanáleik slíkan ferskleika og kraft að mörgum þykirtiðindum sæta i samblandi við allt hitt. Joni afsannar sem sagt það sem oft hefur verið sagt um rokk- iö, að of mikil fullkomnun drepi í því frumkraftinn og neistann. Dog eat Dog erfull- komnasta hljómplata sem ég hef barið eyrum — stór orð en ég stend við þau ... og þaö sem meira er: Joni Mitchell er mest alhliða listamaöur í rokkinu. Fine Young Cannibals nefnist nýleg ensk hljóm- sveit, svo nýlega aö fyrsta breiðskifa hennar kom út i desember 1985. Ekki eru stofnendur hennar þó nýliðar, þeir Andy Cox gitarleikari og David Steele bassa- og hljómborðsleikari voru i „ska“ hljómsveitinni bresku The Beat (Ska er af svipuð- um rótum runnið og reggae en einfaldara). The Fine Young Cannibals eru annað afsþrengi The Beat, áður höfðu þeir Ranking Rogers söngvari og David Wakling gítarleikari (sem stofnaði Beat með Andy Cox) stofnað General Public (t.d. er aö finna samnefnt lag með hljómsveitinni á þeirri ágætu safnplötu Bresku bylgjunni sem út kom árið 1984). Auk þeirra Andys og Davids er i Fine Young Cannibals söngvarinn Roland Gift, sem semur alla texta við lög Mannætufélag- anna sinna ungu og huggu- legu. Eitt er það lag á þessari fyrstu plötu þeirra sem mesta athygli hefur vakiö, Suspicious Minds, sem Elvis Presley söng hér í eina tiö, og syngur bakrödd í þvi lagi Jimmy Sommerville fyrrum söngvari í Bornski Beat, nú i The Communards. Sumir hafa ekki mátt vatni halda yfir þessari útgáfu lagsins og þá sérstaklega söng Rolands og jafnvel gengið svo langt að jaðrar viö guðlast — sagt að hann slái Elvis út! Ég vil nú bara mótmæla því, þótt þeir Fine Young Cannibals geti samt vel við unað sína útgáfu og á hana megi hlusta með ánægju. Suspicious Minds er eina lagið sem fengið er að láni á þessari plötu, öll hin (9) eru eftir þremenningana, nokkuð misjöfn. Þeir sem hafa áhuga á textum munu komast að þvi að þeir félagar eru heldur á vinstri kantinum og sér með- vitandi um þjóðfélagsástönd, eins og reyndar Beat var ekki siður meðan sú sveit var og hét. Auk þremenninganna kemur þarna aðallega við sögu trommarinn Martin Parry, sem er duglegur en einhæfur til lengdar, og svo heyrist í gamla Beat-saxist- anum Saxa i laginu Funny how love is, sem er meö betri lögum plötunnar. Ef skil- greina á músik Fine Young Cannibals má segja að hún teygi sig mjög eftir sálartón- list (soul) en á ekki síður ræt- ur í rokki og poppi og ska- leifar frá Beat koma upp á yfirborðið af og til. Músik þeirra er töluvert nálæg hlustandanum, sérstök, en viss einhæfni i sumum lögun- um sem verkar þreytandi — enda títt og ótt sleginn takt- urinn.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.