Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1987, Blaðsíða 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1987, Blaðsíða 52
Jón Steinar Ragnarsson skrifaði söguna og myndskreytti 52 VÍKINGUR Vetrarhljóð Fyrir fimm ára snáöa, sem ekki vissi betur, haföi hver árstiö sinn ilm og sín hljóö. Þaö var þó ekki laust viö aö fulloröna fólkiö kímdi svolítiö þegar hann sagöi eitthvaö likt og vetrarhljóö eöa morgunilm. Kannski vegna þess aö þaö haföi aldrei heyrt eöa fundiö neitt slíkt. Kannski vegna þess aö þaö haföi aldrei legiö undir sænginni sinni á vetrarmorgni og hlustaö og fundiö. En svona var þaö nú einu sinni. Þaö vissi hann. ★ Marr i mjöll undan syfjuöum stígvélum á leiö í vinnuna, hóstakjöltrin ípabba og lykt af blautum lopavettlingum. Þaö var veturinn. Vindurinn gnauöaöi ámátlegar en á sumrin. Næstum brjóstumkennanlega. Jafnvel hljóöin frá bílunum voru þyngri og dapurlegri. Allt gekk hægar. Fá bros. Lítiö talaö. Já, veturinn var raunamæddur. Sumriö glatt og lifandi. Þá hló allt og þaui hjá í gáska og gleöi. Þaö brakaöi i gólfinu. Nú var pabbi á leiö á sjóinn. Pissaö. Kveikt í sigarettu, og aftur brak- aöi í gólfinu. Stiginn kveinkaöi sér undan þung- um fótum. Aumingja pabbi. Nú varkaltaö fara á sjóinn. Þaö glamraöi í leirtaui í eldhúsinu. Nú var hann aö reyna aö veiöa bolla upp úr hrúgunni í eldhúsvaskinum. Hann hóstaði, svona eins og til aö kæfa hljóðiö. Smellur. Brothljóö. Bölvaö lágt og hóstaö. Þaö heyröist aldrei meira í honum en þegar hann reyndi aö fara hljóölega. Litlir mjúkir fætur læddu sér undan sænginni og tipluöu hljóölaust eftir köldu gólfinu. Hann ætlaöi aö kyssa hann bless. Fyrst settist hann á stigaskörina og hlustaöi. Þefaöi. ★ Stiginn gein óendanlega langur viö þar sem hann rann í eitt saman viö myrkriö niöri á gang- inum. Ilmur af nýju kaffi og sígarettureyk mætti honum. Hann fikraöi sig niöur, þrep fyrir þrep. Stiginn kvartaöi svolítiö yfir ónæöinu svona snemma aö morgni, en lét sér lynda aö á honum væri troöiö. Eldhúshuröin var ekki eins þýölynd. Æiiil, sagöi hún, er snáöinn ýtti viö henni. Allt var svo tregt og sérhlífiö á veturna. „Nú, ert þaö þú?“, sagöi paþþi eins og hann byggist viö draug. „Já, ég heyröi í þér", svaraöi snáöinn og lét sem hann væri nývaknaöur. „Ég ætlaöi bara aö kyssa þig bless. “ Tvær hlemmstórar, sigggrónar hendur lyftu honum upp eins og hann væri þyngdarlaus og skeggbroddar stungu hann í vangann. Hann lagöi armana um hálsinn á pabba og neri vanga viö vanga. „Þú stingur", sagöi hann lágt. „Ég?“ sagöi pabbi eins og ekkert væri fjær. „Þaö hlýtur aö vera þú sem hefur gleymt aö raka þig. “ Snáöinn strauk sér um vangann og brosti. „Ég er aö safna", sagöi hann svo. Pabbi hnussaöi eilítiö eins og hann heföi fengiö eitthvaö í nefiö. Þannig var hann vanur aö hlæja. Svo faömaöi hann litla drenginn sinn aö sér, svo fast aö hann kenndi til. En þaö geröi ekkert til, þvi snáöinn vissi hvaö þaö þýddi. ★ Pabbi setti hann niöur á stól og sótti handa honum mjólk og brauösneiö. Svo sátu þeir feög- ar í heimspekilegri þögn. Hvor á sinum stól og mauluðu brauö. Pabbi sötraöi svart kaffiö i löng- um sogum og blés i bollann. Eldhúsklukkan tif- aöi og hugir þeirra svifu út um gluggann. Skyndilega tók paþþi snöggan kipp, stökk á fætur og kveikti á útvarpinu. Veöurfréttir! Þá var nú eins gott aö þegja eins og steinn. „Sussl", sagöi hann og bandaöi til hendinni, án þess aö nokkur segöi nokkuð. Síöan hvolfdi hann séryfir tækiö, eins og köttur sem bíöur eft- ir aö hremma bráð sína. Þaö sem á eftir fylgdi var eins og helgistund, nema hvaö í kirkju heyröist þó alltaf einstaka hósti og stuna. Afar syfjuö rödd þuldi seiga og hljómbrigöa- lausa þulu: „Gert er ráö fyrir stormi á Vestfjarðamiðum, noröurmiöum“ ... og happdrættismiöum og hvaö þau nú hétu öll þessi miö. Fyrir snáöanum var þetta bara óhemju leiöinleg tugga, sem jafn- vel þulurinn skildi ekki sjálfur. En fyrirpabba var þetta eins og höfuölausn. Spurning um líf og dauöa og sennilega var þaö svo. Aö lokum kom romsa um Færeyjar og Fær- eyjadjúp, en þá slökkti pabbi á tækinu og sórst
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.