Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1987, Blaðsíða 15
Skapmikill
í faömi fjölskyldunnar,
frá vinstri: Þuriður,
yngri sonurinn Leifur,
dæturnar Guölaug
Birna og Ragna og loks
Ari. Elsti sonurinn,
Lárus, var ekki heima.
„Ég held ekki...“
— Geturðu skipt um skoð-
un?
„Já, meira að segja alveg
kinnroðalaust".
— Finnst þér þú hafa erindi
sem erfiði íþessu emþætti?,,
„Já, aö mörgu leyti. Hlutirn-
ir birtast manni náttúrlega allt
öðru visi en áður þegar mað-
ur var úti á sjónum og sá þá
kannski bara frá einni hlið. Þá
fannst manni aö hlutirnir
hlytu að geta gengið miklu
fljótar fyrir sig en þeir gerðu.
Jújú — ég held að okkur
hafi orðið vel ágegnt á und-
anförnum árum, en þvi er
heldur ekki að neita að það er
margt sem hefði mátt fara
betur —og þá á ég kannski
einkum og sér í lagi við kjara-
málin. Ég er óhress með
Þau“.
— Eru þið sífellt að dragast
afturúr...?
„Mér finnst að kjör okkar
hafi hriðversnað miðað við
það sem hefur verið að ger-
ast í landinu. Við höfum ekki
getað fylgt eftir launaskrið-
inu, ekki veriö í aðstöðu til
þess“.
Kjör, könnun
—tortryggni
— En barasta linkind í sjálf-
um ykkur. Er hún mögulega
ástæðan?
„Það má vel vera. Ég úti-
loka það ekki. Við höfum til
dæmis ekki beitt okkur af
nægilegum þrótti við aö fá
samið beint við okkur. Við
höfum ekkert i þetta samflot
með ASÍ að gera. Far-
mennskan er svo ólik öðrum
atvinnugreinum...“
— Greinum sem hafa sitt á
þurru...?
„Ja, þetta verður bara
aldrei borið saman. Hinsveg-
ar hefur okkur orðið mjög vel
ágengt i öðrum þáttum bar-
áttunnar. Ég man til dæmis
eftir þvi þegar ég var aö byrja
í þessu: þá vorum við gjarnan
aö rifast við atvinnurekendur
okkar um hluti sem hvorugur
vissi neitt um. Það var oft
þannig að maður hafði varla
hugmynd um hvað kostnaö-
arliðir, vægi í kaupinu og
ákveðnir póstar þýddu, þó
svo maður reyndi að láta líta
út fyrir annað. Þetta hefur
verið svona oft á tíðum, sem
betur fer ekki alltaf, og háð
samningaviðræðunum. Það
var þvi að við ákváðum árið
1983 —og það var alfarið að
tillögu okkar i viðræðunum
við atvinnurekendur —að láta
fara fram gaumgæfilega
kjarakönnun. Þessi tillaga
var vitaskuld tortryggð i
fyrstu af hálfu útgerðar-
manna, en hún hafðist loks í
gegn. Við fengum út úr þess-
ari könnun, sem Kjararann-
„Hinir hafa farið
snemma í land
vegna þess aö
konurnar gútera
þetta ekki. “
VÍKINGUR 15