Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1987, Síða 58
FtLAGSMAL
Heiöar
Kristinsson
skipstjóri
í samninganefnd
Skipstjórnafélags
íslands
Engin sér-
réttindi
— aöeins
jafnrétti
58 VÍKINGUR
Varaforseti FFSÍ og formaður
Vélstjórafélags islands, Helgi
Laxdal, heldur sig við fyrri iðju
með að úthúða skipstjórum
vegna stefnu SKFÍ i lífeyris-
málum. Ekki er það ætlun min
að svara Helga í löngu máli,
en aðeins nokkrar línur um líf-
eyrismálin o.fl.
Það er algjör misskilningur
hjá Helga aö skipstjórar séu
að krefjast einhverra sérrétt-
inda fyrir sig, það er aðeins
verið að krefjast sama réttar
og flestir sjómenn hafa sem
betur fer nú þegar, ekkert
framyfir það. Helgi segist
sammála því að sjómenn eigi
þess kost að hætta störfum
við 60 ára aldursmörk, en sér
ekkert athugavert við að
nokkur hluti manna búi við
það, að lifeyrir skerðist um
0,5% á mánuöi sem hætt er
störfum fyrir t.d. 70 ára aldur,
sem þýöir 10 ár x 12 mánuöir
x 0,5. Út úr þessu kemur
60% skerðing. Meðan svo er
þá er tómt mál um að tala að
hætta við 60 ára mörkin.
Ekki eru nú skipstjórareinir
um þessa skoöun, sem betur
fer, og minni ég á samþykkt
aðalfundar Stýrimannafélags
Islands 1986 svo og á sam-
þykkt síðasta þings FFSÍ.
Við lestur þingtíðinda FFSÍ
nokkuð aftur i timann og ann-
arra samþykkta hef ég hvergi
séö að slaka eigi á kröfunni
um 60 árin, og á einum staö
las ég samþykkt um að
stefna skuli að 55 ára marki.
Ég verð þvi miður að játa
það að sé varaforseti FFSÍ að
fylgja eftir samþykktum þinga
FFSÍ i þeim málflutningi sem
hann hefur viðhaft að undan-
förnu í lifeyrismálum þá skil
ég ekki islenskt mál.
Afgreiösla kjarasamninga
Varðandi gagnrýni mína á
atkvæðagreiöslu um siðustu
kjarasamninga þá er hún sett
fram af góðum hug enda tel
ég mér málið skylt sem fé-
lagsmaður i Stýrimannafé-
laginu. Það er alveg sama
hversu vel fundir eru auglýst-
ir i þessum félögum, okkar
menn sem eru bundnir við
skip sin hafa enga möguleika
á aö koma á fundi á einhverj-
um ákveðnum tíma hversu
gjarnan sem þeir vilja, enda
sýndi fjöldi fundarmanna það,
29 menn ef ég man rétt úr
Dagblaðinu.
Leiguskipin
Helgi Laxdal segir í grein
sinni i 11, —12. tbl. Vikings
1986 að i Ijósi upplýsinga
sem hann hafi fengið frá
Eimskip og Skipadeild um
fjölda leiguskipa hjá þeim þá
sé það rétt sem hann hafi
haldiö fram áöur (3 leigu-
skip). Mér er meö öllu óskilj-
anleg sú afstaða varaforseta
FFSÍ að gera alltaf minna úr
þessum málum en efni
standa til.
Þegar grein Helga er skrif-
uð eru leiguskip þessara
tveggja félaga fimm sem öll
eru i feröum á áætlunnarleiö-
um félaganna og öll ennþá
með erlendum áhöfnum hvað
sem siöar veröur. Það fer
varla hjá þvi að þetta viti
Helgi.
Það er að visu rétt að búið
er að skila Per Trender en
skömmu siðar var komið skip
að nafni Estetrade i fastar
áætlunarsiglingar Skipa-
deildar. Það skip er eins og
öll þessi skip leigt til nokk-
urra mánaða þó að þau hafi
svo ilengst hér, jafnvel árum
saman með sínum erlendu
áhöfnum.
Áhætta af siglingum verður
eflaust alltaf fyrir hendi, rétt
eins og i öllum atvinnurekstri.
Þeirri áhættu á þó ekki að
mæta með þvi að afhenda er-
lendum aðilum þennan at-
vinnuveg, allra sist ef hugaö
er að þvi hversu háðir viö
erum siglingum með nær all-
an flutning að og frá landinu.
Þrátt fyrir að Helgi hafi þaö
frá Eimskip að siglingar til
Bandaríkjanna séu mjög
ótryggar þá virðast þær ekki
ótryggari en svo að frá þvi fé-
lagið skilaði Laxfossi (sum-
arið 1985) þá hefur alltaf ver-
iö erlent leiguskip með er-
lendri áhöfn á þessari leiö á
móti Bakkafossi.
Það verður að virða mér og
öðrum, sem gert hafa sigling-
ar að ævistarfi sinu, til
vorkunnar að við höfum
áhyggjur af þeirri þróun sem
orðin er i þessum leiguskipa-
málum og ekkert lát sést á.
Skipstjórafélag íslands hefur
við öll tækifæri látið vanþókn-
un sina í Ijós í þessu máli,
sömuleiðis ályktaði Stýri-
mannafélagið um leiguskip á
aðalfundi 1986 og Sjó-
mannasambandið á þingi
sinu s.l. haust.
Frá heildarsamtökum okk-
ar, FFSÍ, sem er sá aðili sem
að minu viti ætti seint og
snemma að senda frá sér
mótmæli vegna þessara
mála, minnist ég ekki að hafa
heyrt orð um þessi mál. Vel-
virðingar er beðið fari ég hér
rangt með.
Að endingu leyfi ég mér að
taka undir sþurningu Sigur-
jóns Valdimarssonar ritsjóra
Víkings úr9. —10. tbl. Vikings
1986 þar sem hann spyr:
Hvað erum við Islendingar aö
gera sjálfum okkur? Sú
spurning á ekki aðeins við
um fiskiðnað þar sem nú
stefnir í alvarlega hættu á
okkar langstærsta og mikil-
vægasta markaði, Banda-
ríkjamarkaðinum, spurningin
á líka við um nýsmiði og við-
gerðir fiskiskipa, kaupskipa-
útgerð og ótal margt fleira.
Mál er að linni.