Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1990, Blaðsíða 46
Hilmar
Snorrason
skipstjóri
Mesti skipsskaði ársins
1989 varð er eldur eyðil-
agði olíuskip undan
ströndum Alsír.
46 VÍKINGUR
Utan úr hcimi
Exxon Valdez
Nýlega lauk viðgerð National
Steel & Shipbld. Yard i San
Diego á olíuskipinu Exxon
Valdez sem strandaði í Prince
William- sundí í Alaska á síð-
asta ári og olli þar mesta meng-
unarslysi sem hefur orðið í
bandarískri lögsögu. Þegarvið-
gerð á skipinu lauk var nafni
þess breytt í Exxon Mediterran-
Um þessar mundir eru Aust-
ur-Þjóðverjar uppteknir við að
skipta um nöfn á skipum sín-
um. Þetta kemur eflaust
spánskt fyrir sjónir svona (
fyrstu, en hvers vegna? Nú
þykir ekki lengur flott þar í landi
að nefna skipin eftir kommún-
istaleiðtogum og þvi hafa
skipsnöfn eins og Otto Grote-
wohl, Waiter Ulbricht og Karl-
Marx-Stadt fengið að víkja fyrir
nöfnunum Sachsen, Thuring-
en og Chemnist.
Ljósmyndun
Nýlega var sovéska skipið
Mexhanick Konlov sektað um
50 þúsund dollara ( Chile.
Læknir skipsins hafði orðið
uppvís að þvi að taka Ijósmynd
af chileönsku herskipi sem lá
við akkeri í höfninni í Valparísó.
Þegar sjóliðar fóru um borð í
sovéska skipið opnaði læknir-
inn myndavélina fyrir þá og tók
úr henni filmuna sem var eyði-
lögð. Ekki tókst að fá sektina
fellda niður þótt filman hefði
veriö eyðilögð.
Fangelsi
Hver ætli sé mesta refsing
sem hægt er að veita nokkrum
sjómanni? Það má eflaust lengi
um það deila, en nýlega heyrði
ég sögu af norskum skipstjóra
sem var á stóru gámaskipi. Að
honum undanskildum var skip-
ið mannað Kóreumönnum.
Meðan hann dvaldist um borð
hafði hann engan til að ræða
við. Ekki féll honum heldur við
„matargerðarlist" áhafnarinnar
sem að sjálfsögðu var ættuð
frá heimalandi þeirra. Hann
hafði að vísu verið forsjáll og
látið innrétta eldhúskrók inn af
íbúð sinni og þar gat hann því
eldað sér sinn eigin mat og
snarlað sig. Þarna um borð
Austur-Þýskaland
eyðir hann tveimur mánuðum í
senn áður en hann fær sín frí.
Það má því segja að maðurínn
sé nánast í einangrun þann
tíma sem hann er um borð. Er
þetta ekki orðin hin versta refs-
ing, eða hvað finnst þér?
Skipstapar 1989
Nýlega voru gefnar út af
Lloyds Regíster skýrslur um
skipstapa á síðasta ári. Þar
kemur fram að á síðasta ári
töpuðust 667.290 grt. og hafa
tölurnar ekki veriö svo lágar
síðan árið 1970, en jafnframt
var tjónið 200.000 grt. lægra
heldur en árið 1988. Stærsti
skipstapi ársins varð þegar
kýpverska oifuskipið Zephyr,
sem var 48.058 grt. brann und-
an strönd Alsírs. Flest mannslíf
töpuðust þegar Líberíuskipið
Maasgusar, sem var 23.038
grt. efnaflutningaskip, varð eldi
að bráð undan Tokyo en þar
fórust 23.