Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Blaðsíða 8
Gestur Gunnarsson skrifar hér bráðskemmtilega og fróðlega frásögn frá þxí hann réri á xertíðarbát frá Keflaxíli Keflavík 1962 Árið 1939 var smíðaður í Svíþjóð 76 tonna eikarbátur. Bátur þessi var knú- inn 150 hestafla Bolinder vél. Hausl- ið 1945 var báturinn skráður í Keflavík, þá nýkominn til landsins. Dux hét hann fyrstu árin, en við eigandaskipti var hann skírður Svanur og fékk einkennis- stafina KE 6. I mars árið 1953 strandaði Svanurinn á Garð- skagaflös, áhöfnin bjargaðist. Flakið var flutt í dráttar- brautina í Keflavík. Þar var smíðaður nýr bolur, minni en sá gamli. Við endur- skráningu í desember 1954 mældist bát- urinn 56 tonn, hafði styst aðeins þarna á skurðarborðinu í Dráttarbrautinni. Árið 1959 var svo skipt urn vél og sett niður 240 hestafla Wickman. Sá er hér segir frá réði sig á þennan lífsreynda bát í byrjun mars árið 1962. Ráðninguna bar að með þeim hætti að farið var á skrifstofu LIÚ í Hafnarhvoli eftir hádegi á þriðjudegi og spurt um pláss. Var mér vísað inn á skrifstofu þar sem ungur maður var. Hann spurði „ertu vanur“, „hvaða skip?“ -Formóður Goði og Víkingur, var svar- ið. „Þú átt að mæta klukkan tíu í Olíu- samlagið í Keflavík, þar verður Ásmund- ur Friðriksson. Þú segir honum að þú sért að fara á Svaninn." Svo fór ég heim að tína saman sjógall- ann og athuga hvða þyrfti að kaupa. Mig vantaði bara sjóhatt sem ég keypti hjá Ellingsen fyrir 150 krónur. Þegar ég svo mætti á tilsettum tíma í Olíusamlagið var enginn Ásmundur þar. Aftur á móti var þar maður sem hél Albert, hann sagði mér að bíða, Ásmundur kæmi. Albert þessi sat í einskonar afgreiðslu þar sem var talstöð og sími. Stöðugt rennerí var þarna, sumir að fá afgreidda olíu sem var sjálfrennandi úr geymum uppi á bakkan- um, rennslismælarnir voru þarna niðri og voru leiðslur niðrá bryggju. Aðrir áttu önnur erindi, veiðar- færi, peningar, kost- ur, meiri mannskap. Þessi Albert var ým- ist í talstöðinni eða símanum og virtist halda um ýmsa þræði í þessari stóru verstöð. Um ellefu- leytið kom Ásmund- ur og Svanurinn renndi að bryggjunni skömmu síðar með fulla lest af bolta- þorski. Ásmundur kynnti mig fyrir skipstjóranum, Garðari Magnússyni frá Höskuldarkoti. Fóru þeir svo niður í lúk- ar en ég í löndunina. Lestin var lúgufull, forum við tveir og tveir til skiptis, í tíu mínútna törnum að tína fiskinn upp úr steisunum. Þegar við svo komum lönd- unarmálinu niður fór þetta að ganga bet- ur. Við vorum búnir að ganga frá urn eittleytið. • • • • Það var ræst klukkan 6. Kokkurinn var búinn að taka til mat, hann var kallaður Halli. Þegar við vorum að klára kaffið heyrðum við að slegið var af og kallaði „- bauja“. Ég tók stakkinn, snaraðist upp og tók baujuna með Einari Pálmasyni stýri- manni. Við draujuðum henni aftur á hekk. Einar sýndi mér hvernig átti að hringa færið niður og þar með var ég orðinn baujumaður. Netin voru dregin með lágþrýstu vökvaspili og var fyrsti vélstjóri oftast við spilið. Fyrsti vélstjóri var elsti maðurinn um borð. Hann hét Jóhann en var kallaður Dalli. Annar vél- stjóri var kallaður Villi og sá um það vandasama verk að leggja niður netin og raða steinum og kúlum. Við úrgreiðslu- borðið voru svo hásetarnir, stýrimaður- inn og kokkurinn. Þarna í byrjun vertíð- ar voru auk mín hásetarnir Indriði Ind- riðason, Þröstur Brynjólfsson og tveir strákar frá Siglufirði, Jói og Palli. Siglfirð- ingarnir höfðu verið hásetar á togaranuin Elliða sem brotnaði og fórst í fárviðri í febrúar. Þeim Elliðamönnum var bjargað á elleftu stundu af togaranum Júpíter sem var undir stjórn Bjarna Ingimarsson- ar. Þegar ég hafði verið nokkrar mínútur þarna í úrgreiðslunni fór ég að verða skrýtinn í maganum og ældi svo eins og múkki. Toppstykkið var greinilega ekki programmerað fyrir sveiílutiðni netbáts, þetta var sjóveiki sem varði í þrjá sóla- hringa. Aðalvinna okkar háseta var að ná fisk- inurn úr netunum og gera þau klár fyrir næstu lögn. Þetta gat stundum verið snú- ið því steinarnir virtust hafa tilhneigingu til að snúast utanum netin. Kúlurnar voru úr gleri, klæddar netpoka, hnútarn- ir á því neti höfðu alveg sérstaka til- hneigingu til að feslast í þorskanetinu. Það var á köflum mun veiðnara á kúlur en fisk. Svo var það vinur okkar allra, þorskurinn. Hann gafst nú ekki upp bar- áttulaust, var oft búinn að vefja netinu utanum sig marga hringi áður en hann andaðist. Ef það kornu upp mjög erfið tilfelli, áttum við áhlaupasveit sem í voru stýrimaðurinn og kokkurinn. Kokkurinn hafði bæði kosti og galla. Við áttum frí á laugardögum og ef kokk- urinn lenti á fylleríi og mætti ekki á laugardagskvöldum var enginn sunnu- dagsmatur. Það var galli. Ef það var mik- ið fiskerí á mánudegi, var þetta kostur. Kokkurinn vann þá á dekkinu með tvö- földum hraða, meðfram tilreiðslu á sunnudagsmatnum. Einu sinni þegar við vorum matarlausir á sunnudegi datt Þresti, sem hafði verið í MA og kunni að eigin sögn að reikna úl rúmmál kók- flösku, í hug að sjóða rauðsprettu. En eitthvað var nú lystin takmörkuð. Kokk- urinn var mikill sögumaður, hafði víða kornið við og lenl í ýmsu. Halli og Villi voru fjölskyldumenn, þeir áttu heima í Mýrahúsa- og Múlakampi, ekki í brögg- um, nei þeir áttu hús sem þeir höfðu srníðað sjálfir. Þeir „undirofficerar" virl- ust fylgjast að og höfðu verið þarna síðan í janúar. Seinna rakst ég á þá í byggingar- vinnu. Þá var Halli sntiður en Villi hand- langari. Sérsvið Halla í sögu var Magni í Koti, pabbi skipstjórans, en Magnús Gestur Gunnarsson 8 - Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.