Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Blaðsíða 76
Þjónustusíður
VAKI-DNG
Lína og net inn um
sömulúguna
Vaki-DNG hefur undanfarin ár selt
lúgur í nokkra linubáta hér við land.
Lúgurnar eru hannaðar af Vaka-DNG en
smíðaðar af Héðinn smiðju. Línuútgerð-
irnar Porbjörn-Fiskanes hf og Vísir hf
hafa verið í fararbroddi að innleiða þessa
nýjung í báta sína. Lúgan veitir mikið ör-
yggi fyrir áhöfn skipsins, en henni er
hægt að loka sjálfvirkt frá stýrishúsi á
innan við 15 sek. Lúgan veitir einnig
mikið skjól fyrir lúgukarlinn sem stend-
ur við lúguna og goggar fiskinn.
Línurúllan eða goggarinn eins og hann
er oftast kallaður er innbyggður í lúguna
og kemur sjálfkrafa í dráttarstöðu þegar
lúgan er fullopin.
Snemma á þessu ári var gengið frá
samningum við norska skipasmíðastöð
Larsnes Mek. Verksted A/S um sölu á
Iúgu í nýjasta norska línuveiðarann sem
verður afhentur rétt fyrir jól og ber nafn-
ið Vonar. Þessi lúga er öllu stærri en lúg-
urnar sem hafa verið smíðaðar fyrir ís-
lensku útgerðirnar hingað til, enda bát-
urinn um 50 metra langur og er fyrirhug-
að að draga bæði línu og net innum einu
og sömu lúguna. Lúgan er þess vegna
sérstaklega styrkt til þess að þola átökin
við netaveiðarnar en þau er mun meiri
en við hefðbundnar línuveiðar. Þetta
verður í fyrsta sinn svo vitað sé að netin
eru dregin inn um netarúllu sem ekki er
vinkilrétt á síðu bátsins.
Vaki-DNG tekur þátt í íslensku
Sjávarútvegssýningunni sem haldinn
verður í Smáranum í Kópavogi dagana
4.-7. sept. næstkomandi. Meðal nýjunga
sem kynntar verða á sýningunni er raf-
knúið línuspil sem ætlað er fyrir stærri
línuskip. Kosturinn við það að hafa raf-
knúið línuspil er fyrst og fremst mýkri
dráttur á línunni og þar af leiðandi
minni líkur á þvi að fiskur slitni af og að
línan slitni ef sjólag er slæmt. Mun ein-
faldara og ódýrara er að leggja rafmagns-
kapla í stað
vökvalagna sem
gerir þetta spil
fýsilegra en spil
knúin með
vökva. Spilinu er
stjórnað með
LineTec stjórn-
búnaði frá Vaka-
DNG sem mun
stjórna hraða og
átaki á línuna.
Spilið verður selt
í einum pakka
með LineTec
kerfinu. Miklar
vonir eru bundn-
ar við þetta nýja spil og er hér um að
ræða algera byltingu í línuveiðum. Mun
meiri nákvæmni er í stýringu á átaki og
hraða heldur en er hægt að ná með hefð-
bundnum línuspilum sem knúin er af
vökvamótorum. Það er þess vegna hægt
að láta LineTec búnaðinn sjá um að
stjórna hraðanum og átakinu þannig að
raunverulegur dráttarhraði línunnar
verður sá sami óháð öllum öðrurn breyt-
um. Samhliða þessum breytingum verður
einnig verður kynnt nýtt og endurbætt
LineTec forrit. Nýja forritið verður með
nýju viðmóti i stað þess eldra sem hefur
verið frá upphafi LineTec forritsins.
Beituvakinn hefur einnig fengið nýtt við-
mót ásamt því að nú er hægt að stýra
hraða línunnar út þegar lagt er. Þetta
nýja forrit er nú þegar um borð í Guðna
Olafsson VE og hefur reynst vel.
Á sýningunni verður einnig kynnt-
ur djúpsjávarrafall sem ætlaður er til að
framleiða rafmagn fyrir neðansjávar-
skynjara s.s. höfuðlínustykki, aflanema,
hleranema og fleira. Þessi búnaður hefur
rnarga kosti í för með sér, ávallt er full
spenna á neðansjávartækjunum þannig
að þau nýtast skipstjórnarmönnum að
fullu á meðan trollið er í sjó. Með djúp-
sjávarrafalnum verður nýting betri og þar
með meiri afköst vegna minni frátafa
vegna umskifta eða hleðslu á raflilöðum.
76 - Sjómannablaðið Víkingur