Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 15
LNG gasflutningaskipin eru aðeins 128 talsins cn fjöldi nýrra slíkra skipa cru i smíðum fyrir kallinn en það dugði lítt að nota peninga til að verða skipstjóri en vilja ekki læra fræðin. Upp um kauðann komst en það sem lögreglunni finnst þó rnerkilegast er að heilt ár leið frá því að vitneskja um þetta kom fram þar til mál- ið var gert opinbert. Ný skipagerð Skipasmíðastöð í Suður Kóreu er að siníða nýja skipategund sem ekki hefur áður verið reynt við en það er svokallað CNG skip (Comprest Natural Gas), sem cr gasflulningaskip. í dag er gas flutt sjóleiðina fljótandi með þvi að kæla það niður í -163° C og kallast þau skip LNG skip (Liquit Natural Gas skip). Kóreu- kallarnir ætla að losna við að kæla farm- inn svo mikið niður og ætla því að hanna skip sem flytur farminn undir miklum þrýstingi og flytja gasið við eðli- legt hitastig. Að vísu mun slíkt skip ekki geta flutti eins mikið magn, eða aðeins fjórðung af þvi magni sem LNG skipin geta en á móti kemur mikill sparnaður við alla aðstöðu í landi. Mikill kostnað- ur er við að byggja aðstöðu í landi til að laka á móti niðurkældu fljótandi jarðgasi og koma því í eðlilegt hitastig á ný. Fyrsta skipið, sem verður 289 metra langt og 60 metra breitt á að verða tilbú- ið í lok ársins. Tvö vélarúm Norska skipafélagið Knudsen hefur gert samning urn smíði á lillu LNG gas- skipi hjá skipasmiðastöðinni Bijlsma í Hollandi sem á að afhendast i október á næsta ári. Skipið á að lesta 1100 rúmmetra af iljótandi jarðgasi og á að s'gla á innanlandshafnir með Bergen sem birgðahöfn. Þetta þætti nú ekki merki- iegt ef ekki kæmi til að með þessu skip ®tla menn að prófa nýja útfærslu á vél- oúnaði skipsins. Verður það búið tveim- ur aðskildum vélarúmum sem verða með rafala til að knýja aðalskrúfu skipsins sem er af svokallaðri azimul gerð. Ann- að vélarúm skipsins verður knúið af því gasi sem kemur frá farmi skipsins en hitt vélarúmið notast við gasolíu sem elds- neyti. pað vélarúm stendur til að nota einungis til vara og þá væntanlega líka þegar enginn farmur er um borð. Það er þvi óhætt að segja að hér sé skip á ferð- inni sem kemur til með að rýra farminn á leið sinni í eigin þágu. Offramboð í vændum í dag eru aðeins 128 LNG gasflutn- ingaskip á skipaskrám. Þörfin á slíkum skipurn á eftir að aukast á næstu árum en þrátt fyrir það bendir allt til að í vændurn verði offramboð af þessari skipagerð. Gert er ráð fyrir jafnri aukn- ingu á flutningsþörf fyrir LNG gas næstu átta árin. Nú þegar hafa 64 skip, stærri en 80 þúsund m3, verið pöntuð til af- hendinga á næstu fjórum til fimm árum. Búast menn við aukinni hörku í sam- keppninni í gasflutningum á næstu árum. Djússkip Það er svo sem ekki nýtt að flytja á- vaxtaþykkni með skipum þótt þær skipa- gerðir hafi ekki mikið haft viðkomur hjá okkur. I staðinn fáum við þykknið flutt í gámum til landsins þar sem síðan endan- lega varan er framleidd. Frarn til þessa hefur ekki verið unnt að flytja tilbúinn á- vaxtasafa í fljótandi formi i skipum en með alveg nýrri tækni er þetta nú orðin veruleiki. Fyrsta skipið sem flytur tilbú- inn ávaxtasafa, Carlos Fischer, fór í jóm- frúarferð sína í apríl s.l. Skipið er 42.500 burðartonn að stærð, 205 metra langt og 32 metra breitt. í skipinu eru 16 farmt- ankar sem samtals taka 29 þúsund rúmmetra af ávaxtasafa. En það þarf að flytja meira en safann og því er rýrni fyrir 560 gámaeiningar á skipinu. Verður það í siglingunt á milli Brasilíu, Bandaríkj- anna og Evrópu. Ekkert mál að endurnýja Á tímum sparnaðar er leiðin að draga úr rekstri og leggja skipum eins og sést vel hér á landi hvað varðar Landhelgis- gæsluna. Frá Jrví að við lukum við að verja landhelgina fyrir Bretum má segja að ekkert hafi verið gert í umbótum fyrir Landhelgisgæsluna ef undanskilin eru þyrlukaup, sem reyndar var orðið að al- menningssöfnun um tíma, en ekki stjórnvaldsaðgerð. Bandaríska strand- gæslan hefur um árabil átt við sparnað að búa en eftir 11. september hefur orð- ið breyting á afstöðu stjórnvalda. Nú skal allt eftirlit hafna aukið og eflt lil að verja Bandaríkin og ekki er verið að spara á Jx’im bæ. Strandgæslan fékk 11 milljarða dollara til kaupa á búnaði og aðra 6 milljarða til annars rekslurs. Þar á bæ ætla rnenn að smíða og kaupa 91 skip og endurbyggja 49 af núverandi skipum sínum. Þar fyrir utan ætla þeir að kaupa 35 flugvélar, 34 þyrlur og 76 óntannaðar fjarstýrðar flugvélar. Þessu til viðbótar á að fjárfesta í tölvubúnaði sem mun hafa því hlutverki að gegna að innihalda persónulegar upplýsingar urn alla þá sjómenn sem korna til hafna í Bandaríkjunum. Nú skulu því Banda- ríkin varin fyrir öllum óþjóðalýð sem reynir að komast þangað sjóleiðina. Hvað ætli þurfi að gerast hjá okkur lil að Gæslan fái nauðsynlegan búnað til að Sjómannablaðið Víkingur - 15

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.