Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Page 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Page 31
íuvita. Veturinn 1908 var verið að bolla- leggja um vitabyggingar á Langanesi og Ondverðarnesi og þá var Krabbe orðinn svo sannfærður um að gasvitarnir gælu hentað hér að hann lagði lil að þeir yrðu notaðir á þessum stöðum, en kvaðst þó líta svo á að þar sem gasvitarnir væru ekki ljósmiklir gætu þeir einungis þjónað til bráðabirgða þar til hægt yrði að koma upp öflugri vitum. Fyrstu gasvitarnir voru settir upp hér- lendis á Skarfasetri á Reykjanesi og Önd- verðarnesi sumarið 1909. I’etta voru hvorttveggja smávitar, raunar aðeins luktir sem fest var efst á stólpa og gashylki við, og þessi útbúnaður reyndist ekki vel því hinar einföldu luktir reyndust helst til ó- þéttar fyrir vindasama íslenska veðráttu. Var því báðurn þessurn vitum breytt í járngrindavita með lokuðu ljóshúsi árið 1914. Járngrindurnar voru einmitt önnur mikilvæg nýjung sem tekin var upp hér um sama leyti og gasvitarnir. Járngrindar- vitar höfðu verið notaðir víða á síðari hluta 19. aldar, einkum þar sem erfitt var að komast að með byggingarefni eða þá að erfitt var að ná jarðfestu í vitagrunnin- um, svo sem á söndurn. Járngrindavitar höfðu og þann kost að þá mátti sntíða að öllu leyti á verkstæði og flytja tilbúna á byggingarstað og reisa þar. Vitar af þessu tagi höfðu verið talsvert notaðir í Svíþjóð og Noregi og þar kynntist Thorvald Krabbe þessari gerð vita, sem um skeið náðu hér mikilli útbreiðslu. Dyrhólaeyjarvitinn sem byggður var sumarið 1910 var i senn fyrsti stóri gasvit- inn sem hér var byggður og fyrsti járn- grindavitinn. Er það var gert höfðu sjófar- endur árunt saman óskað eftir ljósmiklum landtökuvita á suðurslrönd landsins þannig að bygging þessa fyrsta Dyrhóla- eyjarvita markaði tímamót í vitasögunni á margan hátt þótt ekki væri reistur sá Ijós- mikli landtökuviti sem óskir stóðu til. Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir að setja steinolíukynt vitatæki í Dyrhólaeyj- arvita, en Thorvald Krabbe kom þvi til leiðar að valin voru gastæki og járngrind, enda var kostnaður við að reisa slíkan vita einungis brot af því sem steinsteyptur eða hlaðinn viti með steinolíutæki hefði kost- að. Árið 1911 var settur upp viti á Rifstanga á Melrakkasléttu, sem einnig var járngrindaviti með gastæki, sömu gerðar og Dyrhólaeyjarvitinn en nokkru hærri. Voru járngrindurnar í þessa tvo vita smíð- aðar í Danmörku en vitatæki og ljósker i Stokkhólmi. Með tilkomu gastækjanna og járngrind- anna hafði verið innleidd aðferð til að koma vitalýsingu á íslandi í betra horf án þess að tilkostnaður yrði óbærilegur. Ekki var þó alveg horfið frá steinolíuvitum en þeir voru einkum notaðir þar sem hafnar- eða sveitarsjóðir reistu innsiglingarvita enda voru þeir vitar jafnan næri byggð og auðvelt að komast til að hirða um þá. Einnig var hægara um vik fyrir þessa aðila að verða sér úti um steinolíu en gas þar sem í fyrstu þurfti að senda tóm gashylki úr landi lil að láta fylla á þau. Eftir að gas- framleiðslufyrirtækið ÍSAGA var sett á stofn árið 1919 var þó framleitt í landinu nægjanlegt gas fyrir vita landsins. Fótt járngrindurnar næðu mikilli út- breiðslu hvarf steinsteypan ekki sem byggingarefni í vitum. Vattarnesviti við Reyðarfjörð var byggður úr steinsteypu árið 1912. Þar var sett upp gastæki með Skeifan 2 • 108 Reykjavík • S: 530 5900 • Fax: 530 5911 poulsen@poulsen.is • http://www.poulsen.is Sjómannablaðið Víkingur - 31 in.is © 2002

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.