Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Side 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Side 46
Þjónustusíður Vélaland Gæðamálin ofarlega á baugi Hjalti Sigfússoti Fyrir u.þ.b. ári síðan sameinuðust fyr- irtækin MD Vélar hf og Vélaland ehf. undir nafni Vélalands. í framhaldi af því var fyrirtækinu deildaskipt og stofnuð skipadeild. Stærsti þáttur deildarinnar er umboð fyr- ir Mitsubishi skipa- og bátavélar ásamt öllum tilheyrandi búnaði. „Fastir starfsmenn skipadeildarinnar eru fimm en heildar starfsmannafjöldi Vélalands eru tuttugu og sex og færa menn sig á milli deilda eftir því sem þurfa þykir,“ segir Hjalti Ö. Sigfússon, deildarstjóri skipadeildar. ,,Við erum með sérhæfða viðgerðaþjónustu fyrir all- flestar gerðir díselvéla, og byggjum á gömlum grunni, en Vélaland hét áður Þ.Jónsson, en það fyrirtæki var stofnað 1949 og erum við því í raun elsta véla- verkstæði landsins. Vélaland hefur umboð fyrir Mitsubishi iðnaðar- og skipavélar. Jafnframt því að annast sölu, sérhæfða viðgerða og varhlutaþjónustu fyrir Mitsubishi vélar þá útvegum við einnig viðurkennda varahluti fyrir fjölmargar aðrar tegundir af diesel- vélum og önnumst við- gerðir á þeim. Einnig bjóðum við upp á viðgerðir og vara- hluti fyrir afgastúrbínur þ.e. bæði á tækjum til landnotkunar og til sjáv- ar. Túrbínuverkstæði fyrirtækisins er mjög vel tækjum búið og þar er að finna t.a.m. tölvu- stýrðan jafnvægisstilli- bekk fyrir rótora. Um síðustu áramót tók Vélaland við þjón- ustunni fyrir Bosch- Diesel á íslandi af Bræðrunum-Ormsson og er Vélaland eina fyr- irtækið sem Bosch við- urkennir sem þjónustu- aðila á íslandi fyrir dies- elstillingar. Starfsmenn sem þjálfaðir eru hjá Bosch starfa hjá fyrirtækinu við diesel- stillingar og á rafmagnsverkstæði. Sjávarútvegurinn skipar stóran sess i starfsemi Vélalands og er þjónustan við hann um helmingur af veltu fyrirtækis- ins. „Til dæmis eru Mitsubishi vélar frá okkur í bátunum sem Ósey hefur verið að smíða,“ segir Hjalti. „Einnig seljum við ljósavélar, allt frá 5 kw upp í 2000 kw en til gamans má geta að stærsta ljósavél flotans, sem er í Örvari, er frá okkur kornin. Þjónustan við viðskipta- vini okkar er ekki síður mikilvæg . Allar viðgerðir framkvæmdar af Vélalandi eru unnar af fagmönnum sem notast við bestu tækni sem völ er á í dag. Við leggj- um mikið upp úr því að veita sem besta þjónustu og er okkar aðalmarkmið að skila vönduðum viðgerðum. Til að mynda er von á sérfræðingi frá Bosch- Diesel lil okkar sem tnun þjálfa starfs- menn okkar enn frekar i sambandi við allt sem viðkemur þeirra vörum. Það er aldrei hægt að slaka á og alltaf er hægt að læra meira,“ segir Hjalti. Á sýningunni mun Vélaland leggja að- aláherslu á Mitsubishi vélarnar ásamt því að kynna Bosch þjónustuna. „Ég hvet fólk til að koma og kynna sér starfsemi okkar á sjávarútvegssýningunni,11 segir Hjalti Ö. Sigfússon að lokum. Vélaland ehf Vagnhöfði 21 Sími:577 4500 Fax: 567 2806 Veffang: www.velaland.is 46 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.