Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 50
Þjónustusíður Hampiðjan - Net og kaðladeild Stöðug vöruþróun í netum og köðlum Dynex Dux ojurtóg. Mynd SJJ Velgengni í fiskveiðum í dag er að miklu leyti byggð á hæfileika fyrirtækja til að tileinka sér nýungar í veiðum og vinnslu. Stöðugt koma fram nýungar á öllum sviðum sem allar beinast að því að gera fiskveiðar hagkvæmari og betri fyrir bæði útgerðir og sjómenn. Nýjung á einu sviði leiðir gjarnan af sér endur- bætur á öðru og þannig er smátt og smátt hægt að gera endurbætur á öllu því sem að veiðunum lýtur. Neta- og kaðladeild Hampiðjunnar gerir sitt besta til að styðja þessa þróun með því að vinna með nýjustu og bestu efni sem völ er á og þróa úr þeim hágæða vörur sem aftur nýtast til endurbóta á veiðar- færinu sjálfu. Það að Hampiðjan ræður yfir öllu framleiðsluferlinu - allt frá plastkorninu yfir í fullbúið troll með gröndurum og hlerum - gefur gríðar- lega möguleika í því að þróa nýjar vör- ur sem hafa nákvæmlega þá eiginleika sem sóst er eftir á hverjum tima í sífellt sérhæfðari veiðarfæri. Sterkt, sterkara, sterkast.......... Þróunin í ofurtógum hefur verið hröð undanfarin ár og enn er hægt að kynna nýjung sem tekur öðrum gerðum Dy- nex tóga fram hvað styrk varðar. Þessi nýja gerð hefur enda fengið naln við hæfi og er kallað Dynex Dux enda er það sterkara en önnur ofurtóg. í dag eru í boði þrjár grunngerðir af Dynextógum. Fyrst ber að nefna Dynex 60 sem er fyrsta gerð tóganna sem Hampiðjan hóf framleiðslu á um 1990 og er byggt á Dyneema SK60. Þegar DSM markaðsetti Dyneema SK75 fylgdi strax í kjölfarið viðbótargerð af Dy- nextóginu og ber það að sjálfsögðu nafnið Dynex 75. Nýjasta gerðin af Dy- nex tógurn er síðan Dynex Dux. Þar kemur ekki til nýr þráður frá DSM heldur er byggt á sérstakri framleiðslu- aðferð þar sem kaðallinn er meðhöndl- aður í háum hita og undir miklu átaki. Við þessa meðferð breytast eðliseigin- leikar tógsins mikið, styrkurinn eykst frá 20% upp í 43% í grennstu gerðun- um og teygjan fer úr 6% í nýju tógi nið- ur í 3%. Það að teygjan er minni en áður hefur þekkst gerir niðurmælingu á lengdum einfaldari en áður því ekki þarf að gera ráð fyrir lengingu i notkun sem verður ófrávíkjanlega í tógum sem ekki hafa verið forstrekkt. Dynex Dux kaðallinn er rnjög þéttur í sér og stífleikinn er mun meiri en í öðrum Dy- nex köðlum. Yfirborðið er afar slétt og sleipt og þolir betur núning en í öðrunt gerðum. Dynex Dux er framleitt í björt- um appelsínugulum lit til aðgreiningar frá öðrum tegundum Dynextóga. Þótt komin sé ný gerð á markaðinn þá er hún viðbót við það sem fyrir er en kemur ekki í staðinn fyrir annað nema að einhverju leyti. Hver gerð hefur sinn kost og hver velur það sem hentar hverju sinni. Þannig er Dynex 60 hent- ugt þar sem frekar er þörf á sverleika til að taka nudd og skurðarálag, Dynex 75 þar sem þörf er á háum styrk og þver- málið verður að vera sem minnst. Dy- nex Dux er hentugt þar sem mikið reynir á styrk en þvermálið verður að vera í algjöru lágmarki og stífleikinn nýtist til að koma í veg fyrir flækjur og tryggir góða röðun inn á vindur. Hver þessara tegunda er síðan boðin með mismunandi íburðarefnum, þéttari fléttu og kjarna eða kápu til þess að notandinn fái bestu mögulegu útfærslu fyrir sína notkun. Fjölbreytileiki Dy- nextóga Hampiðjunnar er mikill og telja rná fram 19 mismunandi gerðir og má fullyrða að enginn annar framleið- andi hvorki getur eða vill boðið upp á viðlíka úrval enda viljum við tryggja að hver kaupandi fái nákvæmlega það sem hann þarf í sína notkun. Helix - ný kynslóð þankaðla Fyrsta kynslóð þankaðlanna hefur nú runnið sitt skeið. Grunnkaðallinn í eldri gerðinni var snúinn nylonkaðall og þanáhrifin fengin með því að snúa saman á sérstakan hátt tvo slíka kaðla. Þessi útfærsla af þankaðlinum hefur al- mennt reynst vel en hefur engu að síð- ur haft nokkra vankanta. Þar má helst nefna hversu tímafrekt það er að setja upp flottroll úr samansnúnum köðlum þvi ekki aðeins þarf að splæsa hvern legg heldur eru tvö splæs í hverjum enda leggsins. Einnig hefur það sýnt 50 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.