Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 66

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 66
Þjónustusíður Ósey hf. Hafnarfirði Eina starfandi stálskipa- smíðastöðin í landinu Dofnað hefur yfir skipasmíðum á íslandi hin síðari ár nema þá smíði lítilla plastbáta. En ein glæsileg stál- skipasmíðastöð er þó eftir og hefur komið sér fyrir í glæsilegum húsakynnum við Ós- eyrarbraut í Hafnar- firði og blómstrar. Að sögn Vignis Demusson, tæknifræð- ings og verkefnastjóra Óseyjar hf hefur verið mikið að gera við smíði stálbáta síðustu misserin og fyrir liggja pantanir þannig að út- litið er bjart hjá fyrir- tækinu. Vignir segir að fyrirtækið hafi lagt mesta áherslu á nýsmíðar stálskipa síð- ustu árin. Ósey hf var stofnuð árið 1987 og sérhæfði sig í byrjun í að smíða spil fyrir fiskiskip. Síðan hafa mál þróast á þann veg að fyrirtækið er líka orðið skipasmíðastöð. Ósey hf hef- ur unnið fjölmörg verkefni fyrir inn- lenda aðila og þá frekast hverskonar breytingar á skipum auk nýsmíðanna. Það var fyrir fjórum árum síðan sem nýsmíðin hófst. „Síðan nýsmíðin hófst höfum við af- hent 9 stálskip frá 15 metrum að Iengd og upp í 23 metra. Tíunda skipið er nú í smíðum hjá okkur og verður afhent í september. Minnstu skipin eru 30 tonna en þau stærstu 190 tonn sam- kvæmt nýju mælingunni. Stærsta skip- ið sem við höfum smíðað heitir Geir og er fjölveiðiskip. í maí sl. afhentum við tvö skip til Færeyja og þau eru ein- göngu togskip en hinir bátarnir hafa verið fjölveiðiskip. Svo má ekki gleyma dráttarbáti sem við smíðuðum fyrir Hafnarfjarðarhöfn og var afhentur í fyrra,” segir Vignir. Sá bátur sem nú er í smíðum fer til Færeyja. Þá er fyrir- tækið þegar komið með tvo aðra samn- inga. Ósey hf lætur smíða skipsskrokkana út í Pólland. Allt ann- að er smíðað hjá fyr- irtækinu. Nú þegar er hafin smíði á skips- skrokkunum tveimur fyrir Ósey hf út í Pó- landi og þeir koma til landsins í september. Annar báturinn verð- ur tilbúinn og afhent- ur í janúar en hinn í apríl á næsta ári. Sem fyrr segir er allt nema skrokkur- inn smíðað hjá Ósey. Vindurnar, yfirbygging- in og ísetning véla og tækja. Vignir, sem er eins og fyrr segir tæknifræðing- ur, hefur teiknað bátana sem Ósey hf smíðar. Vignir segir að auk þessara tveggja samninga sem eru í höfn sé búið að gera viljasamning við íra um smíði á bát og síðan eru í umræðunni tvö skip fyrir Færeyinga og eru samningavið- ræður kornnar vel á veg. Pað er þvi ljóst að Ósey hf er trygg með verkefni vel fram á næsta ár. Vignir segir að það taki fjóra til sex inánuði að ljúka smíði skips eftir að skrokkurinn kernur frá Póllandi og fer að sjálfsögðu eftir stærð bátsins. Hjá fyrirtækinu starfar rúmlega 30 manns en síðan hefur Ósey hf verið með undirverktaka í raflögnum, tré- smíði og málningu. Ósey hf er í alveg nýju húsnæði sem byggt var eftir að brann hjá fyrirtækinu fyrir tæpum fjórum árum síðan. Hús- næðið er sem fyrr segir stórt og glæsi- legt og greinilegt að þeir Óseyjarmenn hugsa stórt og fram í tímann. Norðleiv FD 659 66 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.