Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 68

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2002, Síða 68
Þjónustusíður Sjóklœðagerðin hf. 66° NORÐUR Sjófatnaðurinn sem sjómenn velja veldur því að hver sem klæðist slíkurn jakka verður vel sýnilegur langt að við lítil birtuskilyrði. Auk þess er sérstakt endurskin á öxlunum sem er mikill ör- yggisþáttur ef menn falla fyrir borð. Efnið í fötunum er sérstaklega sterkt og rifnar ekki fyrr en við inikið átak. End- ing þessa fatnaðar er því meiri en geng- ur og gerist. Eitt af því sem sjómenn hafa sér- staklega orð á er að þessi sjófatnaður er olíuþolin og verður því ekki stífur og ó- þjáll frá þeim ætandi efnum sem fylgja t. d. loðnunni. Þetta er vegna þess að lakkað er yfir ytra byrðið með sérstöku efni til að verja það. Á loðnu munar að minnsta kosti helming á h'ftíma fatnaðar frá Sjóklæðagerðinni miðað við aðra framleiðslu, segja þeir sem reynsluna hafa. Allur frágangur á saumaskap er sérlega vandaður þar sem fyrst er saum- að og síðan tvísoðið yfir. Starfsmenn Sjóklæðagerðarinnar hafa lært af reynsl- unni að flíkurnar slitna mest undir höndunum og í klofbótinni og þar er því sérstök styrking. Endar á erinutn og skálmum eru tvöfaldir lengra upp en frá öðrum framleiðendum með tvísoðnum styrkingarborða. Draga má hettuna á jakkanunt saman með einu handtaki og helst hún þá þannig þar til losað er, einnig með einu handtaki um snúrurn- ar. Buxurnar eru eins að framan og aftan svo þeim má snúa eftir þörfum. Þær ná hátt upp eða alveg uppundir handarkrika og hlífa innri fatnaði því mjög vel. Þá er bórnull innan á buxun- um sem dregur til sín líkamshitann.. Sjófatnaðurinn er boðinn fratn í tveimur þykktum þar sem þyngdin er frá 450 til 620 grömm. Sú þykkri er sérstaklega gerð fyrir erfiðustu aðstæður. Ýmislegt fleira mætti lelja upp, en þetta ætti að gefa nokkra hugmynd um hvers vegna framleiðsla Sjóklæðagerðar- innar nýtur jafn mikillar virðingar og vinsælda hérlendis sem erlendis. Það er engin tilviljun að þeir sjó- menn sem einu sinni hafa reynt sjófatn- aðinn frá Sjóklæðagerðinni - 66° NORÐUR, vilji ekki líta við öðrum sjó- fatnaði. Mörg dæmi eru um sjómenn sem hafa reynt fatnað frá öðrum fram- leiðendum, en hafa síðan að fenginni reynslu aftur snúið sér að fötum Sjó- klæðagerðarinnar og mega ekki heyra á annað minnst en kaupa þá framleiðslu. Ástæðan er í sjálfu sér einföld. Sjó- klæðagerðin byggir á margra áratuga reynslu í framleiðslu sjófatnaðar fyrir ís- lenska sjómenn sem hefur verið þraut- reyndur og þróaður samkvæmt ströng- ustu kröfum sem þekkjast. Þessi sjóföt eru stolt Sjóklæðagerðarinnar og fyrir- tækið er nú í hópi stærstu framleiðenda heims á þessu sviði þar sem sjómenn og aðrir sem þurfa á svona fatnaði að halda gera kröfur um bestu fáanlegu gæði, en eru þó ekki að greiða hærra verð en sett er á fatnað frá öðrum framleiðendum. Aðeins það besta er nógu gott Það er ekki eitt atriði heldur mörg sem valda því að gæði sjófatnaðar frá Sjóklæðagerðinni eru jafn mikil og af- gerandi eins og raun ber vitni. Ókunnir líta kannski svo á að það sé ekki svo ýkja flókið að framleiða buxur og jakka rneð áfastri hettu sem hlífðarfatnað. Það skiptir hins vegar öllu hvernig staðið er að framleiðslunni ef fötin eiga að upp- fylla itrustu kröfur um gæði. Það má taka sem dæmi litinn á fötunum frá Sjó- klæðagerðinni, sem er sérstaklega áber- andi. Það er ekki aðeins rauði liturinn sem er áberandi heldur er hann magn- aður upp með sérstöku flúorefni sem 68 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.